Stöðuskýrsla um ofbeldi meðal barna: Færri börn mæta með hnífa í skólann

Hlutfall nemenda í 8. bekk sem segjast hafa komið með hníf í skóla lækkaði úr 3% í 1% á milli áranna 2024 og 2025 samkvæmt nýrri stöðuskýrslu stjórnvalda um ofbeldi barna og gegn börnum. Á sama tíma líður fleiri börnum vel í skóla og fleiri segjast hafa traustan fullorðinn til að leita til.

Styttri málsmeðferð og færri ofbeldisbrot

Niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2025 ásamt gögnum frá lögreglu og barnaverndarþjónustu sýna jafnframt að dregið hefur úr kynferðisofbeldi og heimilisofbeldi milli ára. Þá hefur málshraði ungmennamála hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu styst verulega á undanförnum árum og fór úr 197 dögum árið 2022 niður í 82 daga árið 2025.

Biðlistar eftir meðferðarúrræðum hjá Barna- og fjölskyldustofu hafa einnig styst og í lok árs 2025 var lítið um börn á biðlista utan Barnahúss.

Einelti og líkamsárásir aukast hjá yngri börnum

Þrátt fyrir jákvæða þróun á ýmsum sviðum, sýna mælingar að einelti hefur aukist í 6. bekk úr 10% í 13 %. Þá hefur líkamsárásum fjölgað meðal yngstu barnanna, sérstaklega meðal drengja. Stafrænt ofbeldi og starfsemi netöfgahópa eru jafnframt vaxandi áhyggjuefni sem kalla á aukna fræðslu og viðbrögð.

Samræmt samstarf í öllum lögregluumdæmum

Samfélagslögreglumenn starfa nú hjá nær öllum lögregluembættum landsins og svæðisbundið samráð hefur verið formfest í öllum 9 lögregluumdæmum. Stuðningur við skóla hefur verið efldur meðal annars með verkefnunum Heillaspor, Föruneyti barna, MEMM og Landsteymi Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu.

Flotinn svokallaði, flakkandi félagsmiðstöð, nær til 35 til 150 ungmenna á hverri vakt og hefur það hlutverk að byggja upp traust og vera til staðar áður en áhættuhegðun eða ofbeldishegðun þróast.

Ný úrræði og lagabreytingar fram undan

Af 25 aðgerðum í aðgerðaáætlun stjórnvalda hafa þrjár verið kláraðar, 15 eru í framkvæmd, 5 í undirbúningi og 2 í innleiðingu. Meðferðarheimilið að Gunnarsholti opnar brátt á ný í nýju húsnæði eftir lokun vegna myglu sem mun styrkja langtímameðferðarúrræði fyrir börn.

Verklag fyrir skóla vegna alvarlegra ofbeldisatvika verður tilbúið á vormánuðum og tilraunaverkefni um skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum hefst á fyrri hluta árs 2026. Þá verður frumvarp um endurskoðuð barnaverndarlög lagt fram á vorþingi Alþingis.

Smelltu hér til þess að skoða skýrsluna.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila