Sumarþjóðaratkvæðagreiðsla um ESB svik við kjósendur

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Arnar Þór Jónsson, lögmann og formann Lýðræðisflokksins í Síðdegisútvarpinu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíðarsamskipti Íslands við Evrópusambandið sem sögð er geta farið fram í ágúst næstkomandi. Arnar telur tímasetningu atkvæðagreiðslunnar bera þess merki að hún sé útpæld og að með henni sé verið að víkja frá þeim fyrirheitum sem gefin voru kjósendum fyrir kosningar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Tímasetningin útpæld

Í umræðunni sagði Arnar Þór að kosningar á hásumri væru án fordæma, hér á landi og að það vekti spurningar að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst þegar stór hluti kjósenda væri erlendis í sumarleyfum eða í ferðalögum innanlands. Að hans mati geti slík tímasetning haft áhrif á þátttöku og þar með niðurstöðu kosninga. Hann benti jafnframt á að þeir stjórnmálaflokkar sem nú hygðust leggja málið fyrir þjóðina hefðu ekki sett Evrópumálið á dagskrá í aðdraganda síðustu kosninga en eftir á hefði það verið fært í forgang, án þess að skýr stefnumörkun hefði verið kynnt kjósendum.

Lagalegar forsendur ekki fyrir hendi

Arnar Þór sagði enn fremur að óljóst væri um hvað ætti að kjósa þar sem hvorki lægju fyrir drög að samningsmarkmiðum né hvernig spurning yrði orðuð. Hann taldi að núgildandi stjórnarskrá Íslands heimilaði ekki aðild að Evrópusambandinu án breytingar og að slík breyting, sem heimilaði valdaframsal, þyrfti að fara fram áður en þjóðin væri beðin um umboð til viðræðna. Að hans mati gæti það falið í sér óábyrga meðferð opinberra fjármuna að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um málefni sem ekki væri framkvæmanlegt nema að undangengnum stjórnarskrárbreytingu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila