
Ríkisstjórn Svíþjóðar hefur ákveðið að fresta lagningu nýs sæstrengs til Danmerkur vegna harðrar deilu við Evrópusambandið um ráðstöfun svokallaðra „flöskuhálstekna“ á raforkumarkaði.
Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að sænska ríkisstjórnin telur að framkvæmdastjórn ESB vilji auka yfirráð ESB yfir þeim tekjum sem sænska ríkið fær af raforkuflutningum milli verðsvæða. Sænski orkumálaráðherrann Ebba Busch sagði að verkefnið „Konti-Skan Connect“, sem ætlað var að endurnýja eldri raforkustrengi milli Svíþjóðar og Danmerkur, yrði stöðvað tímabundið þar til skýr niðurstaða fengist í viðræðunum við ESB.
Tillögur ESB grafa undan sænskum hagsmunum
Ebba Busch gagnrýndi tillögur framkvæmdastjórnarinnar harðlega og kallaði þær meðal annars „óásættanlegar“ og „algjöra hörmung“ fyrir sænska hagsmuni. Deilan snýst um það hvort hluti flöskuhálstekna eigi að renna til sameiginlegra verkefna innan Evrópu í stað þess að vera nýttur af einstökum ríkjum til eigin orkukerfa.
Vilja ráðstafa tekjum í kjarnorku og innlenda uppbyggingu
Svíar vilja meðal annars geta nýtt tekjurnar til uppbyggingar nýrrar raforkuframleiðslu, þar á meðal kjarnorku, en ekki eingöngu til uppbyggingar raforkuneta Evrópu samkvæmt áherslum ESB. Norsk stjórnvöld og norskir stjórnmálamenn hafa einnig lýst yfir stuðningi við afstöðu Svía. Málið hefur vakið umræðu á Norðurlöndum um aukna miðstýringu ESB í orkumálum og um hvort ríkin eigi að halda fullri stjórn yfir eigin orkukerfum, sæstrengjum og raforkutekjum.
