
Tæplega 1,2 milljónir ólöglegra innflytjenda sóttu um löglega búsetu á Spáni áður en umsóknarfrestur rann út 30. júní samkvæmt nýjum tölum spænskra stjórnvalda. Umsóknirnar bárust í tengslum við umfangsmikla aðgerð ríkisstjórnar Pedro Sánchez forsætisráðherra sem miðar að því að færa stóran hóp innflytjenda inn í löglegt atvinnu- og dvalarkerfi landsins. Þetta kemur fram í frétt Euronews.
Alls bárust 1.174.978 umsóknir á tímabilinu frá miðjum apríl til loka júní og hafa yfir 600 þúsund þeirra þegar verið teknar til afgreiðslu.
Flestir umsækjendur frá Suður-Ameríku
Um 67% umsókna komu frá ríkjum Suður-Ameríku. Kólumbía var langstærsta upprunalandið með 25,9% allra umsókna. Þar á eftir komu Marokkó með 13,3%, Venesúela með 11,8% og Perú með 8,8%. Innflytjendur frá Afríku voru 22,9% umsóknanna.
Flestir undir 45 ára aldri
Yfirgnæfandi meirihluti umsækjenda er undir 45 ára aldri en 8 af hverjum 10 umsækjendum falla í þann aldurshóp. Karlar voru 57% umsækjenda en konur 43%.
Til að eiga möguleika á dvalar- og atvinnuleyfi þurfa umsækjendur meðal annars að sýna fram á hreint sakavottorð og að hafa dvalið samfellt á Spáni í að minnsta kosti 5 mánuði fyrir 1. janúar á þessu ári.
Vonast til að manna skortsstörf
Stjórnvöld á Spáni hafa sagt að reglubreytingin muni hjálpa atvinnugreinum sem glíma við skort á starfsfólki, meðal annars byggingariðnaði og öðrum þjónustugreinum. Pedro Sánchez hefur ítrekað lagt áherslu á mikilvægi innflytjenda fyrir spænskt atvinnulíf á sama tíma og mörg önnur Evrópuríki hafa hert stefnu sína í innflytjendamálum. Þó eru ekki allir sem trúa að breytingin muni hafa mikil áhrif.
Þótt nærri 1,2 milljónir hafi sótt um er ekki gert ráð fyrir að allar umsóknir verði samþykktar. Fyrri áætlanir stjórnvalda gerðu ráð fyrir að um 500 þúsund einstaklingar fengju að lokum löglega stöðu samkvæmt úrræðinu.
