Telur hægt að semja um undanþágur fyrir landbúnað og sjávarútveg

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Dag B. Eggertsson, þingmann Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóra Reykjavíkur, í Síðdegisútvarpinu um mögulegar undanþágur fyrir Ísland í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þar kom fram að hann telji raunhæft að ná fram sérlausnum í málaflokkum á borð við landbúnað og sjávarútveg ef viðræður yrðu teknar upp að nýju. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Sérlausnir í samningaviðræðum

Aðspurður sagði Dagur að niðurstöður samningaviðræðna við Evrópusambandið myndu ráða því hvort hægt væri að tryggja íslenska hagsmuni í lykilgreinum á borð við landbúnað og sjávarútveg. Hann vísaði til þess að Finnar hefðu samið um sérstakar lausnir fyrir sinn landbúnað við inngöngu í Evrópusambandið og taldi að slíkt fordæmi sýndi að svigrúm gæti verið til samninga um sérstöðu Íslands. Dagur sagði að mikilvægt væri að opna viðræður til að kanna hvort hægt væri að ná fram sambærilegum niðurstöðum fyrir íslenskan sjávarútveg og landbúnað áður en endanleg afstaða yrði tekin.

Byggt á núverandi stöðu fiskveiða

Í umræðunni kom fram að íslensk fiskveiðistjórn byggi á 200 mílna efnahagslögsögu sem hafi verið í gildi í áratugi. Dagur sagði að innan þess svæðis hafi ekki myndast veiðireynsla annarra ríkja, á síðustu áratugum, sem gæti haft áhrif á samningsstöðu Íslands í hugsanlegum viðræðum. Að hans mati gæti sú staða styrkt samningsstöðu Íslands þegar kæmi að því að semja um fyrirkomulag fiskveiða innan ramma Evrópusambandsins.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila