
Júlíus Valsson læknir skrifar:
Er járnið í líkamanum of lágt þrátt fyrir „eðlilega“ blóðprufu?
Þegar rætt var um vaxandi járnskort einkum meðal kvenna á námsárum mínum í læknadeild minnist ég þess að gamalreyndur læknir sagði okkur til furðu: „Það er er ekki skrýtið! Áður fyrr átu menn pottana sína“. Hann hafði rétt fyrir sér. Fáir elda nú mat í járnpottum. Blóðmör og kjötsúpa sést nú varla á matseðlunum a.m.k. ekki þar sem unglingarnir ráða.
Hvað er járnskortur?
Þreyta, úthaldsleysi, kulsækni, dofi í höndum og fótum, einbeitingarörðugleikar o.fl. geta átt sér margar skýringar. Járnskortur er ein þeirra og getur verið til staðar löngu áður en blóðleysi kemur fram í blóðprufum.
Ferritín er prótein sem geymir járn einkum í beinmergnum og mæling þess í blóði gefur vísbendingu um járnbirgðir líkamans. Blóðrauði, hemóglóbín, segir hins vegar til um hvort blóðleysi (anemia) sé til staðar.
Járnbirgðirnar í beinmergnum geta gengið til þurrðar áður en blóðrauðinn lækkar. Eðlilegur blóðrauði útilokar því ekki járnskort. Nýjar leiðbeiningar Bandaríska blóðmeinafræðifélagsins, ASH, frá 2026 hækka greiningarmörk ferritíns og beina athyglinni að fólki sem áður kann að hafa fengið þau skilaboð að járnbirgðir þess væru eðlilegar.
Hvað er „eðlilegt“ ferritín?
Samkvæmt nýjum leiðbeiningunum er lagt til að ferritín 30 µg/L eða lægra sé notað til greiningar járnskorts hjá fullorðnum, þar á meðal konum á blæðingum og barnshafandi konum. Áður voru 15 µg/L algeng mörk. Einingarnar µg/L og ng/mL gefa sömu tölugildi.
Hjá fólki með einkenni eða viðvarandi áhættuþætti geta mörkin 50 µg/L eða lægra átt betur við. Þetta skiptir sérstaklega máli við miklar tíðablæðingar, fyrirhugaða þungun og tilteknar aðstæður fyrir skurðaðgerð. Hjá barnshafandi konum með blóðleysi geta mörkin 50 einnig átt við, jafnvel án annarra einkenna eða áhættuþátta.
Þannig getur kona með miklar blæðingar og ferritín 40 þurft viðbótarjárn vegna járnskorts, þótt rannsóknastofan merki niðurstöðuna ekki sérstaklega. Greiningarmörkin eru þó ekki sjálfkrafa meðferðarmarkmið fyrir alla. Ferritín 50 er engin töfratala sem tryggir vellíðan.
Hverjir þurfa helst að gæta að járnbirgðunum?
Konur með miklar tíðablæðingar eru í sérstökum áhættuhópi vegna endurtekins járntaps. Barnshafandi konur þurfa meira járn vegna aukinnar blóðmyndunar og vaxtar fósturs og fylgju. Ungbörn og ung börn þurfa einnig nægt járn á örum vaxtarskeiðum. Hjá börnum frá níu mánaða til fjögurra ára leggur ASH til ferritínmörkin 20 µg/L í stað 12, þegar bólga er ekki til staðar.
Reglulegir blóðgjafar þurfa að fylgjast með járnbirgðum sínum. Sama á við um fólk með glútenóþol, bólgusjúkdóma í þörmum eða sögu um hjáveituaðgerð á maga, þar sem upptaka járns getur verið skert. Þeir sem borða lítið eða útiloka marga fæðuflokka þurfa að huga sérstaklega að járnríkri fæðu.
Bólga getur falið járnskort
Ekki er þó hægt að einblína einungis á mælinga á ferritíni því gildi þess í sermi getur hækkað við bólguviðbrögð t.d. ýmsa gigtarsjúkdóma og ilkynja sjúkdóma og getur því gefið villandi mynd af járnbirgðum. Hjá fullorðnum með bólgusjúkóma mælir ASH því með að mæla bæði ferritín og járnmettun transferríns, TSAT. Járnskort má þá íhuga við ferritín undir 100 µg/L eða TSAT undir 20%. Niðurstöðurnar þarf að meta m.t.t. sjúkrasögunnar og ávallt í samráði við lækni og hafa ber í huga að um getur verið að ræða sjúklega ofhleðslu járns, þ.e. sjúkdóminn haemochromatosis.
Matur, meðferð og orsökin
Kjöt, fiskur, baunir og járnbætt kornmeti geta stuðlað að nægri járninntöku. C-vítamínrík fæða eykur upptöku járns úr jurtaríkinu. Við staðfest járnskortsblóðleysi getur þurft járnlyf og rannsókn á orsökinni, svo sem blóðtapi eða skertri upptöku.
Nýju mörkin kalla á vandaðra mat á niðurstöðum blóðprufa. Þreytt kona með miklar blæðingar ætti að fá járnbirgðir sínar metnar þótt blóðrauðinn sé eðlilegur. Það er einmitt tilgangur leiðbeininganna: að greina járnskort fyrr, áður en birgðaþurrð verður að blóðleysi.
Viðmiðunargildi Landspítalans fyrir ferritín í sermi (serum feritín):
| Börn <1 árs | 12-330 µg/L |
| Börn 1 – 6 ára | 7-60 µg/L |
| Börn 6 – 12 ára | 12-100 µg/L |
| Drengir 12 – 17 ára | 14-150 µg/L |
| Karlar >17 ára | 30-400 µg/L |
| Stúlkur 12 – 17 ára | 12-70 µg/L |
| Konur >17 – 50 ára | 15-150 µg/L |
| Konur >50 ára (eftir tíðahvörf) | 30-400 µg/L |
