Þegar frystinum og „smartmælinum“ þínum er stjórnað af tölvuþrjótnum

Júlíus Valsson skrifar:

Netárásir á kælikerfi verslana minna á að fæðuöryggi og orkuöryggi geta ráðist af því hver hefur aðgang að stjórnbúnaðinum.

Starfsfólk kemur til vinnu og uppgötvar að öll frystu matvælin eru ónýt. Frystirinn, sem átti að halda vörunum við mínus 22 gráður, hefur fengið önnur fyrirmæli þá um nóttina. Einhver úti í heimi hefur tekið við stjórninni.

Samkvæmt fréttunum sem nú berast hafa tugir verslana í Belgíu og Svíþjóð orðið fyrir slíkum árásum, auk verslana í Eistlandi og Lúxemborg. Áður höfðu sambærileg áföll orðið í Frakklandi og Hollandi. Í sænskum verslunum var tilkynnt um allt að 50–55 gráðu hita í frystum. Belgískur verslunarstjóri lýsti því að farga hefði þurft mat fyrir að minnsta kosti 60 þúsund evrur.

Stjórnbúnaðurinn er opinn á Netinu

Enn liggur ekki að fullu fyrir hvernig allar árásirnar voru framkvæmdar eða hverjir stóðu að þeim. Það væri því ótímabært að hengja þær á tiltekið ríki. Veikleikinn er þó raunverulegur: franska netöryggisstofnunin CERT-FR hefur staðfest innbrot í fjarstýringar kælikerfa og varað sérstaklega við því að stjórnbúnaður sé aðgengilegur á opnu Netinu. Úreltur búnaður án öryggisuppfærslna er sérstaklega berskjaldaður.

Þarna birtist óþægileg hlið stafrænu þægindanna. Kælitækið getur enn verið heilbrigt hvað varðar vélbúnaðinn á meðan hugbúnaðurinn sem stýrir því er orðinn varasamur. Eigandinn telur sig eiga starfhæfan frysti. Í raun getur öryggi matvælanna ráðist af viðhaldi hugbúnaðar sem fáir veita athygli og fáir hafa hugsað út í.

Fæðuöryggi nær þannig alla leið inn í tölvukerfin. Það stoðar lítið að framleiða nægan mat ef hægt er að eyðileggja birgðirnar í kælikeðjunni á einni nóttu. Samhæfð röskun hjá mörgum verslunum gæti þrengt framboð og aukið sóun. Ef hitabreytingar uppgötvast seint skapast jafnframt hætta fyrir neytendur. Þetta varðar þjóðaröryggi.

Rafmagnið í sömu stöðu

Sama álitaefni verður enn alvarlegra þegar kemur að snjallmælum, oft nefndum „smartmælum“.

Greina verður á milli mælis sem sendir sjálfvirkt upplýsingar um notkun og mælis með fjarrofa sem getur tengt eða aftengt rafmagn. Snjallmælar eru heldur ekki endilega beintengdir opnu Netinu því þeir geta notað sérstök fjarskiptakerfi veitunnar. Það breytir þó ekki því að verja þarf alla leiðina frá mælinum að miðlægum stjórnbúnaði.

Þar sem fjarrofi er til staðar fylgir honum vald til að stöðva afhendingu rafmagns. Komist óviðkomandi aðili yfir það vald getur afleiðingin orðið rafmagnsleysi hjá notendum. Bandaríska staðlastofnunin NIST hefur lengi bent á þessa hættu og mikilvægi þess að sannreyna uppruna stjórnskipana.

Áhættan vex þegar margir mælar lúta sama kerfi. Rannsóknir á fjarrofum snjallmæla sýna að skipulögð aftenging og endurtenging gæti við ákveðnar aðstæður raskað stöðugleika raforkukerfisins. Umfangið ræðst meðal annars af fjölda mæla og vörnum kerfisins. Þetta sannar ekki að íslenskir mælar séu berskjaldaðir, en réttlætir skýrar kröfur um óháða öryggisúttekt. Gömlu mælarnir standa enn fyrir sinu og eru algjörlega öruggir fyrir netárásum.

Orkuöryggi verður því ekki metið eingöngu í megavöttum. Næg framleiðsla gagnast heimilinu lítið ef óviðkomandi getur lokað fyrir afhendinguna.

Veitur bera ábyrgðina

Veitur þurfa að gera grein fyrir því hvort smartmælar þeirra hafi fjarrofa og hvaða varnir hindri fjöldaaftengingu. Takmarka þarf slíkar skipanir og tryggja að hægt sé að stöðva misnotkun áður en hún breiðist út. Kælikerfi þurfa sömuleiðis að geta haldið öruggum rekstri þótt nettenging rofni, með sjálfstæðum viðvörunum og staðbundinni stjórn.

Þægindin við fjarstýringu eru augljós. Reikningurinn fyrir vanrækt öryggi birtist hins vegar hjá öðrum þ.e.í ónýtum mat og rafmagnslausum heimilum.

Tæki verður ekki öruggt við það eitt að vera kallað „snjallt“.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila