ÞORGERÐUR NÝTUR „ABSALÚT VERNDAR“ VON DER LEYEN

Hallur Hallsson skrifar:

Svissneska utanríkisráðuneytið og sendiherra Sviss í Osló munu hafa skipað Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur ræðismanni Sviss á Íslandi að: “… aðhafast ekki; take her hands off the Case.“ Það skýrir af hverju Jóhanna Vigdís braut alþjóðlegar siðareglur ræðismanna; Code of Ethics og Vínarsamþykktina 1967. Ivan Kaufmann var í sambandi við utanríkisráðuneyti Lichtenstein. Háttsettur embættismaður í ráðuneytinu tjáði Kaufmann að mál hans væri “…meðhöndlað á æðstu stöðum.“ Öfl að tjaldabaki væru of kröftug; “…powers involved are too big.” Ráðuneytið myndi ekki aðstoða Kaufmann á nokkurn hátt. Þetta gekk á í ágúst/september 2025. Kaufmann var miður sín af mótlætinu og langt niðri síðsumars 2025.

ÓSNERTANLEG; UNTOUCHABLE FOR ANYONE

Kaufmann hitti ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytis Lichtenstein á leið til Brüssel í nóvember 2025, hr. Martin Frick. Kaufmann gekk á hr. Frick og spurði hvers vegna hann fengi ekki aðstoð. Martin Frick vísaði til Þorgerðar og sagði: “Hún nýtur absalút verndar Úrsulu von der Leyen og er því ósnertanleg; She enjoys absolute protection from Ursula von der Leyen personally and is therefore untouchable for anyone.“ Frick ráðlagði Kaufmann að afskifa fjárfestingu sína á Íslandi og gleyma þessu; “forget about it.” Þremur dögum síðar var íslenska ríkið sýknað í Héraðsdómi og öllu starfsfólki Vélfags sagt upp. Fjörtíu manns misstu vinnu, 120 afleidd störf glötuðust, um 400 manns; karlar konur og börn misstu framfærslu. Tveimur mánuðum síðar var Vélfagsfólk handtekið í lögregluaðgerðum í Eyjafirði, 21. janúar 2026. Hæstiréttur sýknaði ríkið 24. júní 2026; les Þorgerði af kröfum Vélfags vegna viðskiptabanns og stöðvun bankaviðskipta. Kaufmann var leiksoppur voldugra afla sem svissnesk og lichtenísk stjórnvöld beygðu sig fyrir. Tíu sinnum fór Kaufmann fram á fund með Jóhönnu Vigdísi. Tíu sinnum fann Jóhanna Vigdís afsökun til að hitta ekki Kaufmann.

FLUGUKONA BRÜSSEL

Þorgerður hefur svarið drengskapareið að Stjórnarskrá Íslands en vélar með útlendum öflum að selja landið í hendur útlendu ríkjabandalagi. Hún brýtur gegn 86. grein hegningarlaga: „Hver, sem sekur gerist um verknað, sem miðar að því, að reynt verði með … svikum að ráða íslenska ríkið eða hluta þess undir erlend yfirráð, eða að ráða annars einhvern hluta ríkisins undan forræði þess, skal sæta fangelsi ekki skemur en 4 ár eða ævilangt.“ Jafnframt má nefna 91., 92. og 93. greinar hegningalaga. Rifja má upp að um þrjátíu manns kærðu Þorgerði í júní 2025 fyrir landráð. Þorgerður er flugukona Brüssel.

STURLUNARÖLD OG SAGAN RÍMAR

Öfl að tjaldabaki spinna örlagavefi sína. Við lifum örlagatíma á STURLUNARÖLD, sagan rímar. Á Sturlungaöld fór Gissur jarl Þorvaldsson flugumaður Noregskonungs fyrir sjötíu manna vígaflokki í Reykholt á haustjafndægrum 1241. Snorri Sturluson var veginn að skipan Hákonar gamla í bandalagi við Vatikanið í Rómaborg. Gamli sáttmáli markaði 682 ára helsi íslenskrar þjóðar. Það virtist fastriðinn hnútur fyrir eilífiðina en byrjaði að rakna upp þegar EINVELDI konungs var brotið á bak aftur 1848. Jón forseti Sigurðsson sakaði embættismenn konungs að stjórna Íslendingum sem „viljalausum skepnum sér til dýrðar.“ Nú ríkir EINVELDI embættismanna í Brüssel sem knýta hnúta ætlaða fyrir eilífðina; herskari 40 þúsund embættismanna á skattlausum ofurlaunum stjórna viljalausum skepnum sér til dýrðar ásamt 30 þúsund hagsmunavörðum teyma evrópskar þjóðir eptir sér í bandi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila