Þorgerður skrifar undir samning um samstarf við ESB á sviði öryggis- og varnarmála

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins (ESB), undirrituðu samstarfsyfirlýsingu um öryggis- og varnarmál í Brussel í dag. 

„Á þeim miklu óvissutímum sem við nú lifum á alþjóðavettvangi er þessi  samstarfsyfirlýsing í takt við okkar áherslur um að styrkja og efla samstarf á sviði öryggis- og varnarmála við okkar helstu bandalagsríki og samstarfsaðila. Við höfum nýlega undirritað viljayfirlýsingar við Þýskaland og Finnland í varnarmálum og nú styrkjum við tengslin við Evrópusambandið. Aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningurinn við Bandaríkin eru eftir sem áður tvær meginstoðir okkar varna,“ segir Þorgerður Katrín.

Samstarfsyfirlýsingin árétti vilja Íslands og ESB

Með samstarfsyfirlýsingunni er áréttaður pólitískur vilji Íslands og Evrópusambandsins um aukið samstarf á sviði öryggis- og varnarmála. Hún er ekki skuldbindandi og felur ekki í sér kvaðir um framlög eða þátttöku Íslands í verkefnum ESB. 

Þorgerður Katrín og Kallas funduðu sömuleiðis þar sem málefni Úkraínu, staða mála í Mið Austurlöndum, viðbrögð við fjölþáttaógnum og þingsályktunartillaga um að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við ESB voru í brennidepli.

Þá hitti utanríksráðherra Maroš Šefčovič, framkvæmdastjóra hjá ESB sem er ábyrgur fyrir utanríkisviðskiptum og samskiptum við Ísland, sömuleiðis að máli í dag. Þar var farið yfir stöðu mála í alþjóðaviðskiptum og rætt um efnahagslegt öryggi, framkvæmd EES-samningsins og þingsályktunartillögu um að boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands. 

Sameiginlega fréttatilkynningu Íslands og ESB á ensku má lesa hér.

Ræddi undirbúning fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins

Fyrsti fundur Þorgerðar Katrínar í dag var með varaframkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, Radmila Shekerinska, í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel. Ræddu þær undirbúning fyrir leiðtogafund bandalagsins í Ankara í júlí næstkomandi, en áframhaldandi aukin framlög til varnarmála og stuðningur við Úkraínu verða þar meðal helstu mála.

Atlantshafstengslin og aukin ábyrgð bandalagsríkja í Evrópu á vörnum álfunnar voru sömuleiðis til umræðu, sem og átökin í Íran og víðar í Mið Austurlöndum. Þá ræddu þær öryggi og varnir á norðurslóðum, þar á meðal nýja árvekniaðgerð bandalagsins, Arctic Sentry, með þátttöku Íslands. Að lokum ræddu þær samstarf Atlantshafsbandalagsins og Evrópusambandsins sem hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár.

„Atlantshafsbandalagið er hornsteinn í varnar- og öryggisstefnu Íslands og mikilvægt að eiga í reglubundnu samráði við æðsta embættisfólk bandalagsins. Ísland hefur aukið varnartengd framlög á undanförnum árum og við höldum áfram á þeirri braut. Þetta eru viðsjárverðir tímar og mikilvægt að treysta Atlantshafstengslin og á sama tíma aukið samstarf innan Evrópu,” segir Þorgerður Katrín. 

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila