Þurfa nýburar K-vítamín?

Júlíus Valsson læknir skrifar:

Stór bandarísk rannsókn sýnir að nýburar sem fá ekki K-vítamín eru í verulega aukinni hættu á alvarlegum blæðingum. Vaxandi tortryggni foreldra gagnvart læknisfræðilegum forvörnum vekur áhyggjur.

Fátt virðist heilbrigðara en nýfætt barn. Samt búa allir nýburar við ákveðna hættu fyrstu vikur ævinnar. Þeir fæðast með litlar birgðir af K-vítamíni, sem er nauðsynlegt fyrir eðlilega blóðstorknun. Skortur á vítamíninu getur valdið alvarlegum blæðingum án fyrirboða, jafnvel hjá fullfrískum börnum.

Þess vegna hefur lengi verið viðtekin læknisfræðileg venja að gefa nýburum K-vítamín með sprautu í vöðva skömmu eftir fæðingu. Ný bandarísk rannsókn, sem birtist í læknatímaritinu JAMA í nóvember 2026, staðfestir mikilvægi þessarar einföldu forvarnar.

Rannsókn á 5,2 milljónum nýbura

Rannsóknin náði til rúmlega 5,2 milljóna barna sem fæddust í Bandaríkjunum á árunum 2017–2025. Athugað var hvort þau hefðu fengið K-vítamín við fæðingu og hvort blæðingar hefðu greinst á fyrstu sex mánuðum ævinnar.

Niðurstöðurnar voru athyglisverðar. Börn sem fengu ekki K-vítamín voru í 47% meiri hættu á blæðingum og 2,43 sinnum meiri hættu á heilablæðingu en börn sem fengu vítamínið.

Blæðingar greindust hjá 288 af hverjum 10.000 börnum sem fengu ekki K-vítamín, samanborið við 186 af hverjum 10.000 sem fengu það. Einnig var tíðni dauðsfalla samhliða blæðingargreiningu við fæðingarinnlögn um 2,7 sinnum hærri hjá þeim sem ekki fengu vítamínið. Rannsóknin gat þó ekki staðfest að blæðingarnar hefðu valdið dauðsföllunum.

Niðurstöðurnar samræmast umfangsmikilli sænskri rannsókn á meira en tveimur milljónum barna.

Hvers vegna er K-vítamín nauðsynlegt?

K-vítamín gegnir lykilhlutverki við myndun storkuþátta í lifrinni. Nýburar hafa litlar birgðir þess vegna takmarkaðs flutnings yfir fylgjuna. Þarmaflóra þeirra er enn lítt þroskuð og brjóstamjólk inniheldur tiltölulega lítið K-vítamín.

Skorturinn getur valdið blæðingum á fyrstu sólarhringunum eða jafnvel nokkrum mánuðum síðar. Sérstaklega eru heilablæðingar hættulegar vegna hættu á varanlegum heilaskaða og dauða.

Ein sprauta við fæðingu veitir langvarandi vörn. K-vítamín til inntöku krefst endurtekinna skammta og er almennt síður áreiðanlegt gegn síðkomnum blæðingum.

Vaxandi tortryggni eftir COVID-19

Áhyggjuefni er að hlutfall bandarískra nýbura sem fengu ekki K-vítamín jókst úr 3,1% árið 2017 í 6,8% árið 2025. Það er meira en tvöföldun á átta árum.

Þessi þróun vekur spurningar um áhrif þeirrar tortryggni gagnvart heilbrigðisyfirvöldum sem jókst í kjölfar COVID-19 faraldursins. Deilur um bólusetningar, sóttvarnaaðgerðir og upplýsingagjöf stjórnvalda hafa sums staðar grafið undan trausti foreldra á læknisfræðilegum ráðleggingum.

Sú tortryggni virðist nú einnig ná til annarra inngripa og fyrirbyggjandi aðgerða, jafnvel þeirra sem hafa verið viðurkenndar um áratugaskeið. K-vítamíngjöf er þó ekki bólusetning og bandaríska rannsóknin sýnir ekki að COVID-19 faraldurinn hafi valdið aukinni höfnun hennar. Þróunin hófst þegar fyrir faraldurinn.

Áhyggjur foreldra ber að taka alvarlega og svara með skýrum upplýsingum. Um leið verður að gera greinarmun á rökstuddri gagnrýni og höfnun meðferðar sem hefur ótvírætt forvarnargildi.

Ein sprauta getur skipt sköpum

K-vítamíngjöf nýbura er ódýr, örugg og vel rannsökuð forvörn. Alvarlegar aukaverkanir eru afar sjaldgæfar.

Það væri sorglegt ef börn yrðu fyrir varanlegum heilaskaða eða létust vegna þess að foreldrar höfnuðu einfaldri forvörn sem hefur bjargað mannslífum um áratugaskeið.

Traust á heilbrigðisþjónustu má glatast á skömmum tíma.

Afleiðingarnar geta hins vegar fylgt barni alla ævi.

Heimild:  JAMA, nóvember 2026 – Nonreceipt of Newborn Vitamin K and Risk of Bleeding.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila