Þúsundir mótmæla í Kænugarði og krefjast endurkomu fyrrverandi varnarmálaráðherra

Þúsundir Úkraínumanna söfnuðust saman í miðborg Kænugarðs á í gær til að mótmæla ákvörðun Volodymyrs Zelenskyj forseta um að víkja Mykhailo Fedorov úr embætti varnarmálaráðherra. Mótmælendur krefjast þess að Fedorov verði skipaður aftur í embættið og segja brottvikninguna hafa verið illa rökstudda.

Fedorov tók við embætti varnarmálaráðherra í janúar en var leystur frá störfum um miðjan júlí í tengslum við ríkisstjórnarbreytingar. Frá þeim tíma hafa mótmælendur safnast saman við skrifstofu forsetans og krafist þess að hann verði endurráðinn.

Segja ákvörðunina óútskýrða

Á föstudag gengu mótmælendur um sögulega miðborg Kænugarðs áður en þeir söfnuðust saman á Khreshchatyk, aðalgötu borgarinnar.

Einn mótmælenda, Oleksandr, sem starfar við upplýsingatækni, sagði að hann sætti sig ekki við að teknar væru stórar ákvarðanir án þess að stjórnvöld skýrðu ástæður þeirra.

Zelenskyj sagði upphaflega að Fedorov hefði verið leystur frá störfum vegna alvarlegs ágreinings við þáverandi yfirmann hersins, Oleksandr Syrskyj. Syrskyj var sjálfur síðar leystur frá störfum eftir aukinn þrýsting almennings.

Tengja brottvikninguna við baráttu gegn spillingu

Í kjölfar brottvikningarinnar hafa komið fram vangaveltur um að ástæðan hafi fremur verið aðgerðir Fedorovs gegn meintri spillingu innan varnarmálakerfisins. Fedorov ýjaði sjálfur að því í nýlegu viðtali en gaf engar frekari skýringar.

Margir mótmælendur telja að tæknivæðing hersins, sem Fedorov lagði mikla áherslu á, skipti sköpum fyrir varnargetu Úkraínu í stríðinu gegn Rússlandi. Brottvikning hans kom á sama tíma og Úkraína hefur aukið árásir djúpt inn á rússneskt yfirráðasvæði og greint frá árangri á víglínunni.

Engin merki um stefnubreytingu

Zelenskyj hefur ekki gefið nein merki um að hann hyggist endurskoða ákvörðun sína. Hann hefur skipað Yevhenii Khmara, starfandi yfirmann öryggisþjónustu ríkisins, tímabundið í embætti varnarmálaráðherra.

Skipuleggjandi mótmælanna, Dmytro Koziatynskyi, fyrrverandi hermaður, sagði forsetann eiga að gefa Fedorov eitt ár til að hrinda umbótum í framkvæmd og meta síðan árangurinn.

Mótmælendur sögðust jafnframt tilbúnir að halda áfram að mótmæla og kölluðu meðal annars: „Fólkið hefur völdin.“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila