Þýskir íhaldsmenn þrýsta á ESB um afregluvæðingu

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og leiðtogar þýskra íhaldsmanna reyndu í gær að slá á umræðu um ágreining vegna reglusetningar innan Evrópusambandsins, þrátt fyrir aukinn þrýsting frá flokksmönnum kanslarans Friedrich Merz um að draga verulega úr regluverki í Brussel. Von der Leyen fundaði með leiðtogum þýska miðju-hægriflokksins í Berlín þar sem rætt var um reglur innan ESB sem þýskir stjórnmálamenn telja hamla samkeppnishæfni fyrirtækja og atvinnulífs í Þýskalandi. Frá þessu er greint á vef Politico.

Kallað eftir einfaldari reglum

Fyrir fundinn höfðu þingmenn úr röðum þýskra íhaldsmanna lagt fram ítarlegt stefnumótunarskjal með 27 kröfum til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þar sem kallað er eftir róttækri einföldun reglna og minni skrifræði innan sambandsins. Skjalið hefur verið nefnt áætlun um sjálfbæra fækkun skrifræðis innan ESB.

Vilja hraðari breytingar í Evrópu

Von der Leyen sagði að framkvæmdastjórnin væri staðráðin í að skapa betra rekstrarumhverfi fyrir evrópsk fyrirtæki og að markmið framkvæmdastjórnarinnar færu að mörgu leyti saman við áherslur þýskra íhaldsmanna. Hún sagði mikilvægt að fyrirtæki í Evrópu fengju svigrúm til vaxtar og gætu styrkt alþjóðlega samkeppnisstöðu sína hraðar og skilvirkar.

Jens Spahn, einn af leiðtogum þingflokks þýskra íhaldsmanna, sagði jafnframt að flokkurinn væri ánægður með að framkvæmdastjórn ESB ynni að afregluvæðingu og minni skriffinnsku. Hann sagði þó áfram vera tekist á um nákvæma útfærslu einstakra mála.

Átök um gervigreind og iðnað

Tvö stærstu málin sem voru rædd á fundinum voru annars vegar ný iðnaðarlög ESB sem eiga að styrkja framleiðslu innan sambandsins og hins vegar reglur um gervigreind. Þýsk stjórnvöld hafa þrýst á um að reglur um notkun gervigreindar í iðnaðarframleiðslu verði rýmkaðar, sem myndi meðal annars gagnast stórum þýskum iðnfyrirtækjum á borð við Siemens.

Andstaða við þær hugmyndir fer hins vegar vaxandi innan Evrópu og lýstu tíu Evrópuríki því yfir í síðustu viku að tillögur Þjóðverja gætu leitt til afregluvæðingar fremur en raunverulegrar einföldunar reglna. Spahn sagði mikilvægt að Evrópusambandið hlustaði bæði á iðnfyrirtæki, sprotafyrirtæki og gervigreindarfyrirtæki þegar reglurnar yrðu mótaðar. Hann sagði nauðsynlegt að finna rétt jafnvægi milli samkeppnishæfni og reglusetningar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila