
Maðurinn sem handtekinn var eftir skotárás á árlegu blaðamannakvöldi Hvíta hússins í Washington hefur verið nafngreindur og heitir Cole Thomas Allen. Alen er 31 árs gamall vélaverkfræðingur frá Kaliforníu. Árásin átti sér stað skömmu eftir að kvöldverður samtaka fréttaritara hófst á Washington Hilton-hótelinu þar sem Donald Trump Bandaríkjaforseti, eiginkona hans og fjölmargir háttsettir embættismenn voru viðstaddir.
Talið að maðurinn hafi bókað herbergi á hótelinu
Samkvæmt upplýsingum frá Trump hafði Allen mörg vopn á sér þegar hann réðst að öryggishliði við salinn. Talið er að hann hafi bókað sér herbergi á Hilton-hótelinu og þannig komist með vopnin inn á svæðið. Leyniþjónustan yfirbugaði manninn, en einn leyniþjónustumaður varð fyrir skoti. Skothelt vesti stöðvaði kúlu sem hæfði leyniþjónustumanninn og slapp hann án alvarlegra áverka.
Menntaður verkfræðingur og tölvunarfræðingur
Allen er menntaður bæði í vélaverkfræði og tölvunarfræði. Hann starfaði sem leiðbeinandi hjá fyrirtæki sem sérhæfir sig í undirbúningi ungmenna fyrir háskólanám og mun einnig hafa unnið við tölvuleikjagerð í aukastarfi. CNN hefur greint frá því að Allen hafi árið 2024 styrkt forsetaframboð Kamölu Harris um sem nemur tæpum þremur þúsundum íslenskra króna. Hann er þó samkvæmt opinberum skrám óflokksbundinn og ekki skráður meðlimur Demókrataflokksins.
Trump gagnrýnir öryggi Hilton-hótelsins
Trump sagði eftir árásina að atvikið sýndi skýrt að Washington Hilton væri ekki nægilega örugg bygging fyrir viðburði af þessu tagi. Hann sagði jafnframt að nauðsynlegt væri að halda áfram með áform um nýjan hátíðarsal við austurálmu Hvíta hússins. Samkvæmt forsetanum á salurinn að rísa ofan á stórri neðanjarðarbyrgingu sem ætluð er lykilfólki stjórnkerfisins ef til stórátaka eða neyðarástands kemur. Forsetinn hefur lýst framkvæmdinni þannig að salurinn sé í raun „skúr“ ofan á öryggisbyrginu. Áformað er að gluggar verði skotheldir og að mannvirkið geti staðist árásir með drónum og skotvopnum.
Mikill viðbúnaður eftir árásina
Mikill ringulreið skapaðist á staðnum þegar skothvellir heyrðust í salnum. Gestir köstuðu sér niður undir borð á meðan leyniþjónustan flutti forsetann og ráðherra hans á brott undir vopnaðri vernd. Rannsókn stendur enn yfir á málinu og öryggisyfirvöld rannsaka nú hvernig Allen komst með vopn inn á hótelið.
