
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Hilmar Þór Hilmarsson prófessor, við Háskólann á Akureyri í Síðdegisútvarpinu um áhrif átaka við Íran á olíuflutninga um Hormússund og afleiðingar þess fyrir einstök ríki. Í umræðunni kom fram að flæði olíu um sundið hafi þegar dregist saman og að breytingin hafi mest áhrif á Asíuríki sem treysta á þessa leið ásamt Evróðpu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Olíuflæði um Hormússund hefur þegar mikil áhrif
Hilmar sagði að um 20% af olíu heimsins hafi áður farið um Hormússund en að það hlutfall hafi lækkað verulega, í kjölfar átakanna. Þessi samdráttur hafi bein áhrif á framboð á heimsmarkaði og stuðli að hækkandi verði. Hann benti á að ríki við Persaflóa, þar á meðal Katar, Kúveit og Írak, séu háð þessari flutningsleið og standi frammi fyrir verulegri óvissu um útflutningstekjur sínar.
Asíuríki taka við högginu
Í umræðunni kom fram að stærsti hluti olíunnar sem fer um Hormússund sé keyptur af Asíuríkjum. Hilmar nefndi sérstaklega Kína, Japan og Suður-Kóreu sem reiða sig á þessa leið fyrir orkuöflun. Hann sagði að þetta setji þessi ríki í viðkvæma stöðu þar sem þau hafa takmarkaða möguleika til að bregðast hratt við ef flutningar raskast frekar.
Ólík áhrif á Bandaríkin og Evrópu
Benti Hilmar á að Bandaríkin verði síður fyrir beinum áhrifum þar sem landið er stór olíuframleiðandi. Evrópa standi hins vegar verr að vígi þar sem hún sé háð innflutningi og hafi þegar orðið fyrir áhrifum af skertri orkuöflun undanfarin ár. Hann taldi að samdráttur í flutningum um Hormússund geti aukið verðbólgu og þrýsting á hagkerfi Evrópuríkja, sem þurfi jafnframt að auka útgjöld til varnarmála.
Persaflóaríki standa frammi fyrir beinni ógn
Í umræðunni kom einnig fram að ríki á borð við Katar, Kúveit og Sameinuðu arabísku furstadæmin óttist bein áhrif á eigin innviði og útflutning. Hilmar sagði að þessi ríki séu bæði auðug af orku og hernaðarlega viðkvæm þar sem stór hluti framleiðslu fer um afmarkað svæði. Áframhaldandi átök geti haft langvarandi áhrif á stöðugleika í Persaflóa og þar með á alþjóðlegt orkujafnvægi.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
