Trump gæti samið við Pútín og Xi Jinping um nýja stefnu í alþjóðamálum

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Franklín Jónsson í þættinum Heimsmálin á Útvarpi Sögu um fyrirhugaða ferð Donalds Trump Bandaríkjaforseta til Kína og möguleika á fundi hans með Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Xi Jinping Kínaforseta dagana 17-19. nóv. n.k. Guðmundur telur að fundur leiðtoganna 3ja gæti markað tímamót í alþjóðamálum og leitt til breytinga á loftslagsstefnu, rannsókna á COVID-faraldrinum og viðræðna um öryggismál stórveldanna. Arnþrúður velti fyrir sér hvort leiðtogarnir gætu náð samstöðu um umfangsmiklar breytingar á alþjóðlegu samstarfi og friðaráætlun fyrir Evrópu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Fundur stórveldaleiðtoganna gæti markað tímamót

Guðmundur sagði Trump eiga fyrirhugaða ferð til Kína í tengslum við fund APEC dagana 17.–19. nóvember. Hann taldi mögulegt að forsetinn myndi þar hitta bæði Pútín og Xi Jinping og fundur þeirra gæti orðið upphaf umfangsmikilla breytinga á samskiptum stórveldanna.

Hann sagði leiðtoga Bandaríkjanna, Rússlands og Kína geta haft veruleg áhrif á stefnu annarra ríkja ef þeir næðu samkomulagi um sameiginleg hagsmunamál. Hann hefði lengi haft það á tilfinningunni að leiðtogarnir myndu hittast og ræða málefni sem vörðuðu allan heiminn.

Arnþrúður spurði hvaða mál gætu orðið efst á dagskrá og hvort leiðtogarnir myndu móta sameiginlega framtíðarstefnu. Guðmundur taldi að viðræðurnar gætu náð langt út fyrir hefðbundin samskipti ríkjanna og að niðurstöðurnar gætu komið mörgum á óvart.

Stórveldin endurskoði loftslagsstefnuna

Guðmundur taldi loftslagsmál verða eitt helsta umræðuefni leiðtoganna. Hann gagnrýndi sérstaklega stefnu um kolefnishlutleysi, net zero, og dró í efa forsendur hennar. Hann vísaði til vísindamanna sem hann sagði hafa gagnrýnt ríkjandi hugmyndir um áhrif koltvísýrings á loftslag.

Hann sagðist telja að leiðtogarnir gætu orðið sammála um að hætta við umfangsmiklar loftslagsaðgerðir og breyta þeirri stefnu sem mótuð hefði verið á alþjóðavettvangi.

Arnþrúður tók undir gagnrýni á kostnað loftslagsaðgerða og nefndi áhrif þeirra á íslenskt atvinnulíf, sérstaklega ETS gjöld vegna skipaflutninga og flugleiðina. Hún spurði hversu miklar fjárhæðir íslensk fyrirtæki og almenningur þyrftu að greiða vegna slíkra reglna.

Guðmundur sagði Bandaríkin hafa beitt sér gegn áformum um ný kolefnisgjöld á alþjóðlega skipaflutninga. Hann taldi mikilvægt fyrir Ísland að koma í veg fyrir aukinn flutningskostnað vegna slíkra gjalda.

COVID-málin verði rannsökuð á alþjóðavettvangi

Guðmundur nefndi rannsóknir á viðbrögðum við COVID-faraldrinum sem annað stórt mál sem hann taldi að leiðtogarnir gætu tekið fyrir. Hann sagði nauðsynlegt að rannsaka faraldurinn og ákvarðanir stjórnvalda mun ítarlegar en áður, meðal annars áhrif þeirra á samfélög, efnahagslíf og réttindi einstaklinga.

Arnþrúður benti á að rannsóknir á COVID-málunum væru þegar hafnar og langt komnar í Bandaríkjunum og spurði hvort stórveldaleiðtogarnir myndu ræða þær sín á milli.

Guðmundur tók undir það en taldi að gera þyrfti rannsóknirnar að alþjóðlegu verkefni. Hann vænti þess að bæði loftslagsstefnan og COVID-málin yrðu tekin fyrir og að niðurstöðurnar gætu haft áhrif langt út fyrir ríkin 3.

Viðræðurnar gætu einnig snúist um Úkraínu

Guðmundur tengdi hugsanlegan fund leiðtoganna við stríðið í Úkraínu og samskipti Rússlands við vestræn ríki. Hann taldi að stórveldin gætu nýtt fundinn til að ræða leiðir til að binda enda á stríðið og hugsanlega náð niðurstöðu um framhald þess.

Arnþrúður fjallaði um áhrif breyttra valdahlutfalla á Bandaríkjaþingi á stuðning við Úkraínu. Hún benti á að demókratar gætu viljað auka fjárveitingar og þrýsta á um frekari aðgerðir, þótt Trump færi áfram með utanríkisstefnu Bandaríkjanna.

Guðmundur taldi ólíklegt að breytingarnar á þinginu myndu breyta meginstefnu forsetans. Hann vænti þess að Trump myndi halda áfram að leita samkomulags við Rússa og Kínverja.

Fleiri leiðtogafundir komi til greina

Guðmundur taldi mögulegt að fundurinn í Kína yrði upphaf frekari viðræðna og leiðtogarnir gætu ákveðið að halda umfangsmeiri ráðstefnu í janúar eða febrúar. Þar yrðu meðal annars rædd Úkraína, öryggismál og samskipti stórveldanna.

Arnþrúður sagði að slíkar viðræður gætu haft veruleg áhrif á alþjóðastjórnmál og taldi mikilvægt að fylgjast með hvort samstaða næðist um þau málefni sem Guðmundur hafði nefnt, sönuleiðis hvort kynnt yrði ný friðaráætlun fyrir alla Evrópu sem tæki Úkraínu og Rússland inn í þann pakka.

Guðmundur sagðist vænta þess að Trump myndi nýta þau 2 ár sem eftir væru af forsetatíð hans til að koma fram umfangsmiklum breytingum á alþjóðavettvangi. Fundur með leiðtogum Rússlands og Kína gæti orðið mikilvægur þáttur í þeirri viðleitni.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila