
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna segir að mjög góðir möguleikar séu á því að Bandaríkin og Íran nái samkomulagi sem komi í veg fyrir að Íran þrói kjarnorkuvopn. Ummælin lét Trump falla aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann staðfesti að fyrirhugaðri hernaðaraðgerð gegn Íran hefði verið frestað til að gefa áframhaldandi samningaviðræðum tækifæri.
Trump sagði leiðtoga helstu bandalagsríkja Bandaríkjanna í Miðausturlöndum hafa óskað eftir því að árás sem fyrirhuguð var í dag yrði frestað meðan reynt væri að ná samkomulagi við írönsk stjórnvöld.
Segist vilja forðast stórárás
Trump sagði við fréttamenn að hann yrði ánægður ef hægt væri að leysa deiluna án hernaðar.
„Það virðist vera mjög góður möguleiki á að þeir geti leyst þetta. Ef við getum gert það án þess að sprengja þá í tætlur yrði ég mjög ánægður,“ sagði forsetinn. Hann lagði þó áherslu á að bandaríski herinn væri áfram tilbúinn til umfangsmikillar árásar ef samningar brygðust.
Íran leggur fram nýtt friðartilboð
Á sama tíma hafa írönsk stjórnvöld greint frá nýrri friðartillögu sem lögð hafi verið fyrir Bandaríkin.
Samkvæmt íranska ríkisfréttamiðlinum IRNA felur tillagan meðal annars í sér að átökum verði hætt á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon, að bandarískar hersveitir verði dregnar frá svæðum nálægt Íran og að greiddar verði skaðabætur vegna eyðileggingar í stríðinu milli Bandaríkjanna, Ísraels og Írans.
Aðstoðarutanríkisráðherrann Kazem Gharibabadi sagði einnig að Íran krefðist þess að refsiaðgerðum gegn landinu yrði aflétt, frystir íranskir fjármunir yrðu leystir úr haldi og hafnbann Bandaríkjanna gegn Íran yrði afnumið.
Fjárfestar bregðast jákvætt við
Fréttirnar höfðu strax áhrif á fjármálamarkaði í Evrópu þar sem hlutabréf hækkuðu eftir að Trump tilkynnti um frestun árásarinnar. Olíuverð lækkaði jafnframt um allt að 2% þótt það væri áfram yfir 100 dollurum tunnan.
Greinendur segja fjárfesta líta svo á að auknar líkur séu á diplómatískri lausn sem gæti dregið úr spennu í Miðausturlöndum og minnkað hættu á truflunum á olíuflutningum.
