
Bandaríski stjórnmálaskýrandinn Barbara Boyd hjá Promethean Action segir að Donald Trump forseti hafi hafið víðtæka baráttu gegn fjármálakerfi djúpríkisins í Lundúnaborg (City of London) og að átökin við Íran séu hluti af þeirri stefnu.
City of London hefur haft afgerandi áhrif á alþjóðlegt fjármálakerfi í meira en öld. Segir Boyd að áhrif þess nái meðal annars til alþjóðlegra olíuviðskipta, seðlabanka og fjármálamarkaða.
Segir átökin við Íran snúast um fjármál
Þá segir Boyd að átök Bandaríkjanna og Írans snúist ekki fyrst og fremst um kjarnorkumál eða lýðræði heldur séu hluti af stærri átökum um alþjóðlegt fjármálakerfi. Að hennar mati sé markmiðið að veikja eða kollvarpa áhrifum fjármálakerfis Lundúnaborgar og þar með breyta valdajafnvægi í alþjóðlegum fjármálum.
Telur breytingar þegar hafnar
Í umfjöllun sinni bendir Boyd meðal annars á þróun á japönskum fjármálamarkaði og segir að bandarísk stjórnvöld hafi aukið áhrif sín á gjaldeyris- og peningamál. Hún vísar einnig til ummæla og greininga annarra nokkurra álitsgjafa sem hafa bent á þessa þróun um nokkurt skeið.
Horfa má á myndskeið með Boyd hér að neðan þar sem hún fer yfir málið.
