Trump varar dómara við að tefja uppsetningu öryggisbúnaðar við Hvíta húsið

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gagnrýnt harðlega alríkisdómaranum Richard Leon vegna málsóknar sem hefur tafið framkvæmdir við nýjan 400 milljóna dala danssal og drónavarnarkerfi við Hvíta húsið. Trump segir málið stofna þjóðaröryggi Bandaríkjanna í hættu og sagt dómarann leika sér að öryggi Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í frétt Fox News.

Nýtt drónavarnarkerfi nauðsynlegt fyrir varnir Washington

Trump sagði á samfélagsmiðlinum Truth Social að nýja drónavarnarkerfið á þaki byggingarinnar verði eitt það fullkomnasta í heiminum og muni verja Washington til framtíðar. Hann sagði nútímaógnir krefjast allt annarra varnaraðgerða en áður.

„Við getum ekki lengur varið Washington með rifflum og skammbyssum einum saman,“ skrifaði Trump.

Samkvæmt áformunum á byggingin að innihalda þak sem hannað er fyrir hernaðarnotkun, umfangsmiklar drónavarnir og sex hæða neðanjarðarmannvirki með sjúkrahúsi og rannsóknaraðstöðu.

Dómsmálaráðuneytið vill stöðva málsóknina

Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur einnig farið fram á að lögbann gegn framkvæmdunum verði fellt úr gildi. Todd Blanche starfandi dómsmálaráðherra sagði að nýleg skotárás við öryggishlið Hvíta hússins sýni hversu mikilvægt sé að styrkja varnir svæðisins. Hann gagnrýndi málsóknina harðlega og sagði hana stofna öryggi Bandaríkjanna í hættu.

Dómari stöðvaði framkvæmdirnar tímabundið

Richard úrskurðaði í apríl að Trump hefði ekki heimild til að ráðast í framkvæmdirnar án samþykkis Bandaríkjaþings og stöðvaði framkvæmdir yfir jörðu tímabundið. Áfrýjunardómstóll frestaði þó þeirri ákvörðun síðar þannig að framkvæmdir geta haldið áfram fram í júní á meðan málið er til meðferðar. Málsóknin var höfðuð af samtökunum National Trust for Historic Preservation sem berjast fyrir verndun sögulegra bygginga í Bandaríkjunum.

Trump segir bygginguna standast beina árás

Trump hefur lýst byggingunni sem öflugasta varnarmannvirki sem geti staðist beina árás. þakið verði úr sértaklega styrktu stáli og girðingar verði svo sterkar að jarðýtur geti ekki brotið þær niður. Auk þess verði byggingin sérstaklega hönnuð til að verjast drónaárásum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila