Tulsi fór yfir rannsókn á tengslum Anthony Fauci á upphafi Covid faraldursins

Tulsi Gabbard ræddi við Megyn Kelly í viðtali í fyrra um rannsókn á Anthony Fauci, fyrrverandi yfirmanni bandarísku smitsjúkdómastofnunarinnar NIAID, vegna tengsla hans við fjármögnun svokallaðra „gain-of-function“ rannsókna og mögulegs hlutverks þeirra í uppruna COVID-19. Síðan þá hefur rannsókninni talsvert undið fram og á dögunum var David Morens nánasti samstarfsmaður Anthony Fauci ákærður eftir að hluta rannsóknarinnar lauk.

Tulsi sagði í viðtalinu að unnið að málinu í samstarfi við Jay Bhattacharya og Robert F. Kennedy Jr., með það að markmiði að sýna fram á bein tengsl milli slíkra rannsókna og þess sem varð að COVID-19 faraldrinum.

Telur bandaríska fjármögnun liggja að baki

Í viðtalinu kom fram að rannsóknin beinist meðal annars að starfsemi í Wuhan-rannsóknarstofunni og tengslum við samtökin EcoHealth Alliance.

Gabbard sagði að umræddar rannsóknir, sem felast í því að breyta eiginleikum veira til rannsókna, hafi verið fjármagnaðar af bandarískum aðilum og tengist hættulegri þróun sem geti leitt til alþjóðlegra heilsukreppa.

Segir Fauci hafa neitað undir eiði

Í viðtalinu var vísað til þess að Anthony Fauci hefði ítrekað neitað því að slíkar rannsóknir tengdust bandarískri fjármögnun, meðal annars í yfirheyrslum hjá bandaríska þinginu.

Gabbard sagði að ef staðfest verði að tiltekin rannsókn tengist uppruna faraldursins sýni það að fjármögnun hafi átt þátt í því sem varð að heimsfaraldrinum.

Varað við alþjóðlegri áhættu

Gabbard sagði að „gain-of-function“ rannsóknir fari fram í lífvísindarannsóknarstofum víða um heim og geti haft í för með sér nýja heimsfaraldra ef sýklar sleppi út.

Hún sagði nauðsynlegt að binda endi á slíka starfsemi og leggja fram gögn sem sýni hvernig hún ógni alþjóðlegu heilbrigði. Uppruni COVID-19 er enn til skoðunar hjá yfirvöldum og rannsóknaraðilum.

Horfa má á viðtalið hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila