Tulsi Gabbard birtir skjöl og sem sýna að Fauci hafi hylmt yfir uppruna Covid-19

Tulsi Gabbard, fráfarandi yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, hefur birt áður óbirt skjöl og samskipti sem hún segir sýna að Anthony Fauci hafi unnið markvisst að því að hafa áhrif á mat leyniþjónustunnar á uppruna Covid-19 og reynt að draga athygli frá eigin hlutverki í fjármögnun umdeildra rannsókna í Kína.

Í yfirlýsingu sem Gabbard birti á síðasta degi sínum í embætti sagði hún að Fauci hafi sem forstjóri National Institute of Allergy and Infectious Diseases veitt milljónir dollara af skattfé bandarískra skattgreiðenda til rannsókna á leðurblökukórónuveirum við veirufræðistofnunina í Wuhan í Kína.

Gabbard segir að þær rannsóknir séu nú af mörgum taldar líklegasta skýringin á rannsóknarstofuleka sem hafi orðið upptök Covid-19 heimsfaraldursins.

Fauci reyndi að hafa áhrif á mat leyniþjónustunnar

Samkvæmt Gabbard sýna skjölin að Fauci hafi átt í samskiptum við háttsetta embættismenn innan bandarísku leyniþjónustunnar og haft áhrif á hvernig stofnanir hennar mátu uppruna veirunnar.

Hún segir Fauci hafi stutt þá niðurstöðu að veiran ætti sér náttúrulegan uppruna og að þeirri niðurstöðu hafi verið ýtt fram til að draga athygli frá rannsóknum sem hann sjálfur hafði stutt fjárhagslega.

„Þessi skjöl sýna hvernig Fauci vann með pólitískri yfirstjórn innan leyniþjónustunnar til að bæla niður sannleikann um rannsóknarstofulekann og eigið hlutverk í fjármögnun rannsóknanna,“ segir Gabbard.

Fauci laug eiðsvarinn

Eitt alvarlegasta atriðið sem bent er á í yfirlýsingu Gabbard snýr að vitnisburði Fauci fyrir bandaríska þinginu árið 2024. Fauci hafi þá undir eiði neitað því að hafa átt samskipti við leyniþjónustustofnanir um rannsóknir á veirunni og uppruna hennar.

Að sögn Gabbard stangast nýbirt samskipti beint á við þann vitnisburð.

„Samskiptin sem birt eru í dag ganga þvert gegn þeim yfirlýsingum sem hann gaf undir eiði fyrir þinginu,“ segir hún.

Uppljóstrarar segja gagnrýnendur hafa sætt refsiaðgerðum

Gabbard greinir einnig frá því að embætti hennar hafi tekið við vitnisburði frá nokkrum uppljóstrurum innan leyniþjónustunnar. Samkvæmt þeim hafi starfsmenn sem efuðust um opinberar niðurstöður um náttúrulegan uppruna veirunnar orðið fyrir þrýstingi, verið jaðarsettir eða misst starfsframa tækifæri.

Í einu tilviki hafi verktaki verið látinn fara skömmu eftir að hann kom fram sem uppljóstrari. Í öðrum tilvikum hafi stjórnendur gert grein fyrir því að starfsframi greiningaraðila gæti ráðist af því hvort þeir fylgdu línu yfirstjórnarinnar.

Gabbard segir þetta sýna mynstur þar sem gagnrýnar raddir hafi verið þaggaðar niður og andstæð sjónarmið útilokuð frá umræðunni.

Kallar eftir ábyrgð og gagnsæi

Í yfirlýsingunni segir Gabbard að bandarískur almenningur eigi rétt á að fá skýrar upplýsingar um hvað gerðist á fyrstu stigum heimsfaraldursins og hverjir beri ábyrgð á ákvörðunum sem teknar voru.

Hún segir Fauci og aðra embættismenn um að hafa misnotað vald sitt, hagrætt upplýsingum og komið í veg fyrir að bæði almenningur og kjörnir fulltrúar fengju rétta mynd af stöðunni.

„Eftir margra ára lygar, ritskoðun og yfirhylmingar á almenningur skilið gagnsæi, sannleikann og ábyrgð,“ segir Gabbard.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila