Ekki hægt að deila fréttum eða hlekkjum um innihald tölvunnar
Elon Musk hefur leyft blaðamanni að skoða innri Twitter-skjöl sem sýna hvernig fyrirtækið ritskoðaði fullkomlega uppljóstrunina um fartölvu Hunter Biden. Rétt fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2020 birti New York Post miklar afhjúpanir úr fartölvu, sem tilheyrði Hunter syni Joe Biden.
Spillingin sem efnið í tölvunni benti til og varðaði Joe Biden sjálfan var algjör sprengja. En stóru fjölmiðlafyrirtækin í Bandaríkjunum völdu að hylma yfir fréttirnar og fullyrtu í staðinn, að þetta væri „rússnesk falsfrétt.“ Netrisarnir stöðvuðu dreifingu greinarinnar.
Samkvæmt rannsókn, sem Newsbusters greindi frá, gæti yfirhylmingin hafa kostað Donald Trump sigurinn í kosningunum. Twitter gekk einna lengst í ritskoðuninni og leyfði notendum sínum ekki einu sinni að senda hlekkinn á New York Post sín á milli í einkaskilaboðum. Þessa ritskoðunaraðferð hafði fyrirtækið notað áður eingöngu gegn barnaklámi.
Demókratar sendu Twitter tengla sem þeir vildu láta eyða – og Twitter eyddi
Elon Musk, nýr eigandi Twitter, hefur lofað að láta almenning vita af ritskoðunarstarfinu sem fór fram á meðan fyrirtækið var stjórnað af vinstrimönnum. Blaðamaðurinn Matt Taibbi hefur nú fengið að fara í gegnum innri tölvupósta og skjöl úr sögu fyrirtækisins. Rannsóknir hans sýna, að fyrir kosningar hafði Twitter beint samband við Demókrataflokkinn sem sendi tengla á færslur á Twitter til að eyða. Repúblikanar voru líka með slíka rás en að sögn Taibbi hafði það áhrif, að starfsmenn Twitter höfðu á þeim tíma svo til eingöngu samúð með demókrötum. Í miðkjörtímabilskosningunum á þessu ári fóru 99,7% af pólitískum framlögum sem komu frá starfsmönnum Twitter til frambjóðenda demókrata.
Varðandi uppljóstranirnar um Hunter Biden, þá sýnir Matt Taibbi hvernig ráðamenn Twitter rökstuddu ákvörðunina um að ritskoða fréttirnar. Kom í ljós, að þeir ákváðu snemma að halda því fram að greinin væri byggð á „hökkuðu efni“ og því væri ekki heimilt að dreifa henni. Matt Taibbi skrifar að lykilhlutverk við ákvörðunina hafi verið í höndum Vijaya Gadde sem annaðist stefnumál netrisans. Taibbi skrifar og vísar í tölvubréf fyrrverandi starfsmann Twitter:
„Ákvörðunin var tekin á æðstu stigum fyrirtækisins, en án vitundar forstjóra Jack Dorsey. Afsökunin var að grænin væri „hökkuð“ en innan nokkurra klukkustunda áttuðu næstum allir sig á því að það myndi ekki virka. En enginn hafði hugrekki til að breyta ákvörðuninni.“