
Úkraínskar hersveitir hafa gert árásir á loftvarnar- og rafhernaðarkerfi í nágrenni við höll við Svartahaf sem lengi hefur verið sögð í eigu Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Árásirnar eru sagðar hafa veikt loftvarnir svæðisins og opnað leið fyrir frekari drónaárásir. Þetta kemur fram í frétt Daily Mail.
Höllin er skammt frá Gelendzhik í suðurhluta Rússlands og hefur verðmæti hennar verið metið á um 1 milljarð punda.
Tvö varnarkerfi slegin út
Þann 7. ágúst var Volna Kupol Garant-rafhernaðarkerfi eyðilagt nærri höllinni. Kerfið er meðal annars ætlað að trufla fjarskipti og verja svæðið gegn drónum.
Tveimur dögum síðar var ráðist á S-400-loftvarnarkerfi í um 19 km fjarlægð frá höllinni. Gervihnattamyndir eru sagðar sýna að minnsta kosti 1 skotpallur hafi eyðilagst.
Hernaðarsérfræðingurinn Yan Matveyev segir eyðileggingu rafhernaðarkerfisins hafa auðveldað úkraínskum drónum að komast að S-400-kerfinu. Hann telur að árásirnar séu hluti af markvissum aðgerðum Úkraínu gegn rússneskum loftvörnum á Krímskaga og í suðurhluta Rússlands.
Höllin berskjaldaðri eftir árásirnar
S-400-kerfið er hannað til að granda flugvélum, drónum og stýriflaugum. Samkvæmt Robert Brovdi, yfirmanni drónasveita Úkraínu, logaði í kerfinu í um 3 klukkustundir eftir árásina.
Árásirnar þýða að varnarkerfin í kringum höllina hafa veikst verulega. Matveyev gengur svo langt að segja höllina nú standa óvarða en ekki liggur fyrir hvort önnur loftvarnarkerfi séu enn til staðar á svæðinu.
Engar upplýsingar liggja fyrir hvort Úkraína hafi gert árás á höllina sjálfa.
Höllin vakti heimsathygli
Höllin vakti mikla athygli árið 2021 þegar rússneski stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalny, birti rannsókn sem hann sagði sýna að höllin væri í eigu Pútín.
Samkvæmt rannsókninni er byggingarsvæðið um 17.700 fermetrar og þar eru meðal annars spilavíti, skautasvell, vínekra, þyrlupallur, kirkja, hringleikahús og veitingastaðir. Undir höllinni er jafnframt sagt vera umfangsmikið neðanjarðarbyrgi.
Pútín hefur neitað því að eiga höllina. Arkady Rotenberg, auðugur rússneskur kaupsýslumaður og gamall samstarfsmaður Pútíns, hefur sagst vera eigandi hennar.
Árásir langt inn í Rússland
Árásirnar við Gelendzhik koma á sama tíma og Úkraína hefur aukið langdrægar drónaárásir á rússneska orku-, iðnaðar- og hernaðarinnviði.
Samkvæmt Daily Mail hafa meðal annars olíuhreinsistöðvar og iðnaðarmannvirki langt inni í Rússlandi orðið fyrir árásum undanfarna daga.
