
Oleksandr Dubinsky, þingmaður á úkraínska þinginu, hefur birt myndbandsávarp til Donalds Trump Bandaríkjaforseta þar sem hann segir Joe Biden, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, og Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta tengjast umfangsmikilli spillingu og misnotkun valds. Dubinsky, sem kveðst hafa verið í fangelsi í 14 mánuði, segir fangelsisvist sína eiga rætur að rekja til þess að hann hafi upplýst um fjármálatengsl Biden-fjölskyldunnar við Úkraínu. Hann hvetur Trump til að láta rannsaka alla fjárhagsaðstoð Bandaríkjanna til Úkraínu frá árinu 2020.
Í ávarpinu segir Dubinsky að úkraínsk stjórnvöld hafi höfðað fjögur sakamál gegn honum að undirlagi stjórnvalda í Washington eftir sigur Bidens í forsetakosningunum árið 2020. Hann hafnar ásökunum um tengsl við rússneska leyniþjónustu og segir málareksturinn hafa þann tilgang að þagga niður í sér.
Biden-fjölskyldan hafi hagnast á viðskiptum í Úkraínu
Dubinsky segist fyrst hafa vakið athygli á spillingu Biden-fjölskyldunnar árið 2019. Hann segir Joe Biden hafa nýtt tengsl sín við Úkraínu í eigin fjárhagslegum tilgangi og að sonur hans, Hunter Biden, hafi fengið milljónir dala í gegnum aflandsfélög og viðskipti sem tengdust úkraínska orkufyrirtækinu Burisma.
Hann vísar til rannsókna bandaríska þingsins og dómsmála í Bandaríkjunum sem hann segir hafa leitt í ljós greiðslur til Hunters Biden frá úkraínskum aðilum.
„Hver situr í fangelsi? Dubinsky, ekki Biden. Fyrir hvað? Fyrir að segja sannleikann um spillingu Bidens á blaðamannafundi?“ spyr hann í ávarpinu.
Sakamálin gegn honum séu pólitísk
Dubinsky segist hafa verið fangelsaður í nóvember 2023 og að ríkisstjórn Zelenskys beiti réttarkerfinu gegn sér. Hann segir engin sönnunargögn hafa verið lögð fram gegn honum, réttarhöld hafi ekki farið fram og hann hafi ekki einu sinni verið kallaður til skýrslutöku.
Hann hafnar því að vera útsendari Rússlands og segist hvorki hafa tengsl við rússnesk stjórnvöld né leyniþjónustur þeirra. Hann nefnir sérstaklega Andriy Derkach, sem hann kveðst ekki hafa nein tengsl við.
Dubinsky líkir meðferð sinni við þær ásakanir um tengsl við Rússland sem Trump hefur sjálfur sætt og segir slíkar ásakanir notaðar gegn þeim sem fjalli um spillingu Biden-fjölskyldunnar.
Zelensky haldi stríðinu áfram vegna peninga og valda
Dubinsky gagnrýnir Zelensky harðlega og segir áframhaldandi stríð þjóna pólitískum og fjárhagslegum hagsmunum forsetans. Hann segir 70% Úkraínumanna vilja að stríðinu ljúki en að Zelensky vilji ekki frið þar sem hann óttist að missa völdin.
„Hann heldur stríðinu áfram, ekki til að vinna sigur, heldur vegna peninga og valda,“ segir Dubinsky.
Hann gagnrýnir jafnframt að forsetakosningar hafi ekki farið fram í Úkraínu meðan stríðið stendur yfir og segir Zelensky óttast ósigur í kosningum. Dubinsky bendir í því sambandi á að Bandaríkin hafi haldið kosningar meðan þrælastríðið stóð yfir.
Vill rannsókn á allri bandarískri aðstoð frá 2020
Dubinsky hvetur Trump til að láta gera heildarúttekt á öllum fjármunum sem Bandaríkin hafa sent til Úkraínu frá árinu 2020. Hann segir milljarða dala hafa runnið í spillingu undir yfirskini aðstoðar við landið.
Hann segir einnig George Soros og samtök tengd honum hafa haft áhrif á úkraínska fjölmiðla og stjórnmál í samstarfi við Biden, Zelensky og Andriy Yermak. Þá hafi þessir sömu aðilar hafi komið að afskiptum af bandarísku forsetakosningunum árið 2020.
Dubinsky fagnar aðgerðum Trump sem hann segir hafa stöðvað fjármögnun samtaka tengdra Soros í Úkraínu og hvetur forsetann til að ganga lengra. Hann krefst þess að fjárstreymi til ríkisstjórnar Zelenskys verði stöðvað og að Bandaríkin beiti áhrifum sínum til að stuðla að friði, lýðræði og endurreisn réttarríkisins í Úkraínu.
„Úkraínska þjóðin treystir þér og bindur vonir við forsetatíð þína. Við vitum að þú ert sá eini sem getur stöðvað þetta,“ segir Dubinsky í lok ávarpsins.
