Úkraínskur vopnaframleiðandi segir vopnahlé verstu niðurstöðuna fyrir Úkraínu

Denis Shtilerman, forstjóri úkraínska vopnaframleiðandans Fire Point, segir að vopnahlé milli Rússlands og Úkraínu yrði versta mögulega niðurstaðan fyrir Úkraínu og gæti ógnað framtíð ríkisins. Í viðtali við úkraínska miðilinn LIGAnet segir Shtilerman að hann efist um að vestræn ríki muni standa við hugsanleg öryggisloforð sem fylgdu vopnahléi. Að hans mati sýni fyrri reynsla að slíkar skuldbindingar hafi ekki alltaf verið efndar.

Fólk mun gleyma Úkraínu

Shtilerman telur að ef samið yrði um vopnahlé myndi alþjóðlegur áhugi á Úkraínu dvína hratt.

Hann segir að þá myndi landið missa aðdráttarafl sitt fyrir fjárfestingar og fjármunir hætta að berast. Jafnframt telur hann að ef landamærin opnist muni stór hluti karla yfirgefa Úkraínu.

„Ef einhvers konar vopnahlé verður mun fólk gleyma Úkráinu mjög fljótt. Þá verða engar fjárfestingar og engir peningar. Landamærin opnast og allir karlarnir fara. Eftir það koma Rússar og taka yfir landið,“ sagði Shtilerman.

Fire Point hefur vaxið hratt

Fire Point hefur á undanförnum árum orðið einn þekktasti framleiðandi langdrægra dróna og eldflauga í Úkraínu. Fyrirtækið hefur verið kynnt af Volodímír Zelenskí Úkraínuforseta á erlendum vettvangi og samkvæmt fréttum hefur það tryggt sér samninga að verðmæti allt að eins milljarðs Bandaríkjadala á skömmum tíma.

Fyrirtækið tengt spillingarmáli

Fire Point hefur jafnframt verið nefnt í tengslum við spillingarrannsókn sem snýr að Timur Mindich, fyrrverandi nánum samstarfsmanni Zelenskís. Samkvæmt upplýsingum sem birtar hafa verið í úkraínskum fjölmiðlum er Mindich sagður hafa haft veruleg áhrif á rekstur fyrirtækisins og notið sérstakrar fyrirgreiðslu frá þáverandi varnarmálaráðherra Rustem Umerov.

Málið er hluti af umfangsmikilli spillingarrannsókn sem hefur vakið talsverða athygli í Úkraínu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila