
Um 2.000 manns, flestir unglingar, hafa verið handteknir eftir að mótmæli framhaldsskólanema í Frakklandi breiddust út um landið og þróuðust víða yfir í hörð átök við lögreglu, íkveikjur og skemmdarverk. Um 400 framhaldsskólar voru lokaðir á föstudag vegna ástandsins, eða um tíundi hver framhaldsskóli landsins.
Óeirðir urðu á ný í fjölmörgum frönskum borgum í dag. Í Strassborg beitti óeirðalögregla táragasi, í Marseille var skoteldum skotið að lögreglu og í Rennes var kveikt í ruslatunnum.
Í Pantin í útjaðri Parísar kveiktu mótmælendur meðal annars í girðingum og köstuðu öflugum flugeldum að óeirðalögreglu áður en lögregla beitti táragasi til að dreifa hópnum.
Franska ríkisstjórnin boðaði til neyðarfundar á fimmtudag og heimildarmaður Reuters innan forsætisráðuneytisins sagði að mótmælin hefðu þróast úr mótmælahreyfingu yfir í borgaróeirðir á sumum stöðum.
65 starfsmenn skóla særst
Édouard Geffray menntamálaráðherra segir 65 starfsmenn skóla hafa særst frá því átökin hófust. Þar af eru 40 skólastjórnendur.
Ofbeldið hefur aukist eftir því sem mótmælin hafa breiðst út um landið. Nokkrir nemendur á Parísarsvæðinu sögðu Reuters að þeir hefðu ákveðið að taka ekki þátt í mótmælunum vegna þess hversu hörð átökin væru orðin.
Gérald Darmanin dómsmálaráðherra sagði að um 2.000 hefðu verið handteknir frá upphafi mótmælanna og að flestir þeirra væru unglingar.
Hann telur að foreldrar ungmenna sem valda eignaspjöllum eigi að greiða fyrir tjónið.
400 skólar lokaðir
Um 400 framhaldsskólar voru lokaðir á föstudag vegna óeirðanna. Það jafngildir um tíunda hverjum framhaldsskóla Frakklands.
Geffray hvatti foreldra til að halda börnum sínum frá mótmælunum.
Mótmælin hófust á Parísarsvæðinu í síðustu viku en hafa síðan breiðst út um landið.
Nemendur krefjast meðal annars þess að fleiri afleysingakennarar verði ráðnir, meira fé renni til skólanna og námsaðstæður verði bættar.
Þeir hafa sérstaklega kvartað undan yfirfullum kennslustofum, reglulegum kennaraskorti og illa viðhöldnu skólahúsnæði.
15 ára nemandi í Pantin sagði Reuters að 35 nemendur væru í hverjum bekk og að ekki væru einu sinni nægilega margir stólar í kennslustofunum.
Kennarar boða verkfall
Stéttarfélög kennara hafa boðað verkfall á þriðjudag. Það verður aðeins viku eftir að opinberir starfsmenn lögðu niður störf.
Sandra Champain-Seller kennari sagði ofbeldið miður en að óánægja nemenda hefði lengi verið látin óáreitt.
Hún sagði margra ára skort á viðbrögðum við kröfum nemenda, ásamt pólitískri og alþjóðlegri óvissu, hafa skapað mikinn kvíða meðal ungs fólks.
Sumir foreldrar hafa einnig lýst stuðningi við upphaflegar kröfur nemenda. Faðir sem mætti með dóttur sinni að Hélène Boucher-framhaldsskólanum í París sagði nemendur hafa fullan rétt á að krefjast betri námsaðstæðna.
Vaxtagreiðslur ríkisins verða meiri en útgjöld til menntamála
Óeirðirnar koma á sama tíma og ríkisstjórn Sébastiens Lecornu hefur kynnt fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027.
Samkvæmt frumvarpinu eiga útgjöld til menntamála að aukast um 1,7% og verða 65,53 milljarðar evra, að frátöldum lífeyrisgreiðslum kennara.
Hækkunin er minni en verðbólgan og felur því í sér að kaupmáttur fjárveitinganna minnkar.
Menntamál hafa jafnan verið stærsti útgjaldaliður franska ríkisins en það breytist á næsta ári. Vaxtagreiðslur vegna ríkisskuldanna eiga þá að nema 74,5 milljörðum evra og verða meiri en útgjöld til menntamála.
Stjórnvöld segja utanaðkomandi hópa hafa blandað sér í mótmælin
Darmanin segir utanaðkomandi óeirðaseggi hafa blandað sér í mótmæli nemenda og ýtt undir ofbeldið, meðal annars hælisleitendur frá Palestínu.
Frönsk leyniþjónusta sagði á neyðarfundi ríkisstjórnarinnar að stjórnmálamenn úr vinstriflokknum La France Insoumise, LFI, hefðu átt þátt í að koma mótmælunum af stað.
Forystumenn LFI hafna því og saka ríkisstjórnina um að gera mótmæli nemenda að pólitísku deilumáli fyrir forsetakosningarnar á næsta ári.
Mannréttindasamtök hafa á sama tíma sakað lögreglu um of harkalega framgöngu gegn börnum og ungmennum, meðal annars með kylfum, táragasi og vopnum sem skjóta óbanvænum skotum.
Innanríkisráðuneytið hefur hafið 3 rannsóknir á meintri valdbeitingu lögreglu.
Ólgan gæti jafnframt verið farin að berast út fyrir Frakkland. Framhaldsskólanemar í Liège í Belgíu hófu mótmæli á fimmtudag og voru framhaldsskólar borgarinnar lokaðir í dag.
