Um 700 lögreglumenn slasaðir og tugmilljónatjón vegna óeirða um allt Frakkland

Um 700 lögreglumenn hafa slasast og yfir 5.000 manns hafa verið handtekin í Frakklandi frá því umfangsmikil mótmæli framhaldsskólanema breiddust út um landið í vikunni. Aðgerðir hafa náð til meira en 1.200 skóla og sums staðar þróast yfir í hörð átök, íkveikjur og skemmdarverk. Tjón á skólum og öðrum mannvirkjum hleypur þegar á tugum milljóna evra áður en endanlegt tjónamat liggur fyrir.

Mótmælin hófust vegna kennaraskorts, yfirfullra bekkja, lélegs ástands skólahúsnæðis og skorts á öðru starfsfólki. Þau breiddust fyrst út frá úthverfum Parísar og síðan til borga víðs vegar um Frakkland. Á sama tíma hefur ofbeldi við hluta skólanna orðið sífellt meira áberandi og lögregla hefur beitt táragasi og gúmmíkúlum við aðgerðir sínar.

Yfir 1.700 handteknir á einum degi

Laurent Nuñez innanríkisráðherra sagði að 1.747 hefðu verið handtekin föstudaginn 2. október einan vegna atburða í kringum skólana. Daginn áður voru 1.954 handteknir og heildarfjöldinn frá mánudegi kominn yfir 5.000 á föstudagskvöld.

Alls urðu 735 skólar fyrir aðgerðum á föstudag og skráði lögregla það sem hún skilgreinir sem borgarofbeldi við 158 þeirra. Þar var meðal annars um að ræða grjótkast og önnur skotfæri, árásir á lögreglu, kennara, blaðamenn og vegfarendur. Mótmælunum hafði fækkað frá fimmtudeginum, þegar aðgerðir voru skráðar við 1.027 skóla og 222 þeirra voru lokaðir eða blokkaðir.

Mótmælin hafa átt sér stað við meira en 1.200 framhaldsskóla einhvern tíma í vikunni. Sú tala lýsir því hversu víða hreyfingin hefur náð en ekki fjölda þeirra skóla þar sem skemmdir eða eldar hafa orðið.

Skólar brenndir og sjö íkveikjutilraunir í Nantes

Eitt alvarlegasta tilfellið varð við Lycée Nelson-Mandela í Nantes þar sem inngangur skólans eyðilagðist í eldi fimmtudaginn 1. október. Skólinn er með um 1.700 nemendur og verður lokaður fram að Toussaint-skólafríinu. Kennsla fer fram í fjarnámi á meðan viðgerðir standa yfir.

Lögreglan í Nantes segir sjö tilraunir hafa verið gerðar til að kveikja í framhaldsskólum borgarinnar. Hóparnir færðu sig hratt á milli skóla og samkvæmt lögreglu voru aðgerðirnar að hluta skipulagðar í gegnum samfélagsmiðla. Af 24 sem handtekin voru vegna íkveikjutengdra brota í Nantes voru 22 ólögráða og í námi á höfuðborgarsvæðinu þar.

Viðgerðarkostnaður við Nelson-Mandela-skólann einn er þegar metinn á að minnsta kosti tvær milljónir evra. Tólf framhaldsskólar í Pays de la Loire hafa orðið fyrir skemmdum undanfarna daga og bráðabirgðamat héraðsins á heildartjóninu er að minnsta kosti þrjár milljónir evra.

Eldar hafa einnig valdið skemmdum við skóla í París og nágrenni. Inngangur Lycée Henri-Moissan í Meaux eyðilagðist í eldi á föstudagsmorgun. Í París skemmdust inngangar Lycée Léonard-de-Vinci og Roger-Verlomme og eldur í reiðhjóli og rusli barst að inngangi Lycée Gaston-Bachelard.

Tjónið komið í tugi milljóna evra

Héruðin sem bera ábyrgð á skólabyggingunum eru nú farin að leggja mat á kostnaðinn og tölurnar hækka hratt.

Í Auvergne-Rhône-Alpes er tjónið metið á 25 til 30 milljónir evra. Þar hafa um 90 skólar orðið fyrir skemmdum eða öðrum atvikum og tæplega 380 atvik verið skráð. Héraðsstjórnin undirbýr meira en 400 kærur vegna skemmdarverka, hótana og árása.

Í Île-de-France er tjónið þegar metið á sjö milljónir evra. Þar höfðu um 70 hlið, inngangar og girðingar við skóla skemmst að hluta eða öllu leyti frá upphafi aðgerðanna. Á föstudag einum urðu 55 skólar í héraðinu fyrir ofbeldi, átökum eða skemmdum.

Grand Est metur sitt tjón á um eina milljón evra og svipuð tala hefur verið gefin upp í Hauts-de-France. Í Occitanie hefur tjónið verið metið á um þrjár milljónir evra. Þessar svæðisbundnu tölur nema saman tugum milljóna evra og eru enn bráðabirgðamat. Aðferðir héraðanna við tjónamatið eru jafnframt mismunandi; Auvergne-Rhône-Alpes telur til dæmis einnig skemmdir á svæðum í kringum skólana og ökutækjum.

Molotov-kokteilar og bensín fundust í Hérault

Nýjar upplýsingar frá Hérault sýna hversu langt átökin hafa gengið sums staðar. Þar voru aðgerðir við 13 skóla á föstudag og 28 handtekin, þar af 13 í Montpellier og níu í Béziers.

Héraðsyfirvöld segja suma þeirra sem tóku þátt hafa verið grímuklædda og bera grjót, öflugan flugeldabúnað, Molotov-kokteila og eldfima vökva. Í Pézenas var ólögráða einstaklingur handtekinn á leið að skóla með tvo lítra af bensíni. Lögreglumaður særðist á höfði við handtökuna.

Hlaut alvarleg brunasár í andliti eftir að kveikt var í andlitinu

Í Lunel hlaut mótmælandi alvarleg brunasár á andliti og hendi þegar viðkomandi reyndi samkvæmt héraðsyfirvöldum að kveikja í úðabrúsa við Lycée Louis-Feuillade. Þær upplýsingar koma þó illa heim og saman við myndband af atvikinu sem sýnir eintakling vísvitandi beina úðabrúsa með eldi á andlit einstaklingsins.

Skemmdir á fimm framhaldsskólum í Hérault eru metnar á meira en eina milljón evra. Kennsla verður áfram í fjarnámi í Lycée Jean-Mermoz og Lycée Pierre-Mendès-France í Montpellier vegna skemmda og þess að öryggi nemenda og starfsfólks verður ekki tryggt.

Héraðsstjórinn hefur framlengt bann við því að bera eða flytja flugeldabúnað og eldfima vökva í nokkrum sveitarfélögum 4. og 5. október.

Ríkisstjórnin dregur til baka fyrirhuguð skólagjöld

Á sama tíma reynir franska ríkisstjórnin að bregðast við þeim kröfum sem komu mótmælunum af stað. Menntamálaráðherrann Édouard Geffray hefur fundað með fulltrúum nemenda, foreldra og verkalýðsfélaga.

Ríkisstjórnin hefur meðal annars fallið frá áformum um ný skólagjöld fyrir nemendur í BTS-námi og undirbúningsdeildum fyrir háskóla. Fyrirhuguð gjöld áttu að skila ríkinu meira en 30 milljónum evra. Nemendasamtök segja aðgerðir stjórnvalda ekki ganga nógu langt og hafa boðað áframhaldandi mótmæli.

Boðað hefur verið til mótmælaaðgerða á ný næstkomandi þriðjudag. Lögregla og skólayfirvöld búa sig því undir að átök, lokanir og aðgerðir við skóla geti hafist á ný eftir helgina.

Hér að neðan má sjá myndasyrpu frá óeirðunum.

Hér fyrir neðan má sjá þegar kveikt er í andliti einstaklings í óeirðunum.

Viðkvæmir eru varaðir við myndefninu

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila