
Kristinn Hreinn Þorbergsson skrifar:
Umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Evrópska efnahagssvæðið (bókun 35)
Ég finn mig knúinn, sem íslenskur ríkisborgari í hart nær 80 ár, að andmæla framgangi bókunar 35 nú þegar hún í fjórða sinn er lögð fyrir alþingi. Að mínu mati væri það freklegt brot á stjórnarskránni að samþykkja bókunina og þarf ekki að leita lengra en í aðra grein stjórnarskrárinnar til að sannfærast um það. Ég vil með þessari “umsögn” leggja fram eftirfarandi áskorun til þeirra aðila sem málið varðar. Í áskoruninni nota ég þérun til að leggja áherslu á að enn ber ég fulla virðingu fyrir stjórnskipulaginu eins og það birtist í Stjórnarskrá Íslands.
Þér, heiðraði alþingismaður/forseti, sem undirritað hafið drengskaparheit að stjórnarskránni, íhugið vel hvað felst í samþykkt bókunarinnar. Er það virkilega ásættanlegt að yðar mati að rjúfa drengskaparheit yðar og brjóta aðra grein stjórnarskrárinnar, svipta komandi kynslóðir rétti sínum, varpa þjóðinni undir fjarlægt vald með vafasama framtíð og gerast þar með brotlegur um landráð og við hegningarlög að mati margra virtra lögfræðinga.
Ég vil skora á yður að gera vandlega upp hug yðar og við kosningu um málið óska eftir nafnakalli svo þjóðin geti séð svart á hvítu hvaða hug þér berið til hennar og gefins drengskaparheits.
