Ungt fólk í Evrópu treystir ekki lífeyriskerfinu

Traust ungs fólks á lífeyriskerfum Evrópu fer minnkandi þrátt fyrir að stór hluti ungs fólks greiði áfram í lífeyrissjóði. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn frá hugveitunni Friends of Europe þar sem kannað var viðhorf 2.000 Evrópubúa á aldrinum 18 til 35 ára í Danmörku, Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu, Póllandi og á Spáni. Þetta segir í frétt Euronews.

Samkvæmt rannsókninni segjast 22% þátttakenda hafa mestar áhyggjur af lífeyrismálum, en um leið viðurkenna 30% að þau hafi aðeins takmarkaðan skilning á því hvernig lífeyriskerfið virkar.

Frakkar og Danir þekkja kerfið verst

Ungt fólk í Danmörku og Frakklandi segist hafa litla þekkingu á starfsemi lífeyriskerfisins, en Ítalir og Spánverjar telja sig þekkja kerfið vel. Einn franskur þátttakandi sagði stærstu áhyggjurnar felast í því að lífeyriskerfið virki ekki lengur fyrir yngri kynslóðir og að ungt fólk þurfi að greiða fyrir slæmar pólitískar og efnahagslegar ákvarðanir fyrri ára.

Treysta ekki að lífeyririnn dugi

Nær helmingur þátttakenda sagðist þegar greiða í lífeyriskerfi, en aðeins 9% sögðust ekki ætla að greiða í slíkt kerfi. Þrátt fyrir það telja aðeins 17% að lífeyrir þeirra muni nægja til framfærslu á efri árum, en 43% búast við að hann verði ekki nægjanlegur.

Rannsóknin segir heildarmyndina skýra: margir upplifi að þeir séu að greiða í kerfi sem þeir treysti ekki.

Mikill stuðningur við breytingar

Flestir þátttakendur frá Spáni, Ítalíu, Þýskalandi, Póllandi og Frakklandi sögðu núverandi lífeyriskerfi bilað og töldu nauðsynlegt að ráðast í umbætur. Í Danmörku voru viðhorfin jákvæðari þar sem 43% þátttakenda sögðu kerfið virka vel og töldu ekki þörf á breytingum.

Þátttakendur voru þó ekki sammála um hvernig umbætur ættu að fara fram. Um 45% sögðust vilja breytingar án þess að gripið yrði til óvinsælla aðgerða, en 40% töldu nauðsynlegt að ráðast í erfiðar pólitískar ákvarðanir til að tryggja framtíð lífeyriskerfanna í Evrópu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila