Útgöngubann boðað í Frakklandi – yfir 2.000 fyrirtæki orðið fyrir tjóni í óeirðunum

Sébastien Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, hefur óskað eftir því að útgöngubann verði sett á afmörkuðum svæðum í borgum þar sem umfangsmiklar óeirðir hafa geisað undanfarna daga. Yfir 2.500 manns hafa verið handteknir, meira en 2.000 fyrirtæki hafa orðið fyrir tjóni, yfir 1000 lögreglumenn hafa slasast og skemmdarverk eru metin á hundruð milljóna evra. Laurent Nuñez innanríkisráðherra hefur viðurkennt að lögregla hafi misst stjórn á ástandinu í nokkrum stórborgum og bauðst til að segja af sér, en Emmanuel Macron Frakklandsforseti hafnaði afsögninni. Þetta segir í frétt France24

Óeirðirnar héldu áfram síðastliðna nótt í París, Marseille, Lyon og Nantes eftir umfangsmikil mótmæli um helgina sem þróuðust víða yfir í íkveikjur, rán og hörð átök við lögreglu. Gulvestungahreyfingin hefur þegar boðað ný mótmæli næstkomandi laugardag, 24. október, og stjórnvöld hafa ekki útilokað að lýsa yfir neyðarástandi ef ástandið versnar enn frekar.

Forsætisráðherrann vill útgöngubann á óeirðasvæðum

Lecornu tilkynnti á mánudag að hann hefði beint þeim tilmælum til svæðisbundinna stjórnvalda að setja tímabundið útgöngubann á þeim svæðum þar sem óeirðirnar hafa verið hvað harðastar. Aðgerðirnar eiga einkum að vernda verslanir og önnur fyrirtæki gegn frekari ránum og skemmdarverkum.

Forsætisráðherrann lagði áherslu á að útgöngubannið yrði staðbundið og tæki aðeins til afmarkaðra svæða. Hann útilokaði almennt útgöngubann í allri París en tilkynnti ekki hvaða borgir eða borgarhlutar yrðu fyrst fyrir takmörkununum.

Hann sagði jafnframt að ríkisstjórnin væri reiðubúin að lýsa yfir neyðarástandi ef aðstæður krefðust þess en taldi staðbundið útgöngubann heppilegri leið eins og staðan væri núna.

„Ég er staðráðinn í að koma á lögum og reglu. Neyðarástand er mjög alvarleg ráðstöfun. Ef nauðsyn krefur getum við auðvitað gripið til hennar,“ sagði Lecornu.

Innanríkisráðherrann viðurkennir að lögregla hafi misst stjórn á ástandinu

Laurent Nuñez innanríkisráðherra viðurkenndi í viðtali við France Inter á mánudag að lögregla hefði misst stjórn á ástandinu í nokkrum stórborgum þegar óeirðirnar stóðu sem hæst á laugardag.

„Það er ekki hægt að horfa í augun á kaupmönnum þegar hundruð fyrirtækja hafa verið rænd og segja að við höfum ekki misst stjórn á ástandinu í sumum þessara stórborga. Auðvitað gerðum við það,“ sagði Nuñez.

Ráðherrann greindi jafnframt frá því að hann hefði boðist til að segja af sér vegna atburðanna en Macron forseti hafnaði afsögninni og óskaði eftir því að hann sæti áfram í embætti til að stýra viðbrögðum lögreglu.

Tjón hjá yfir 2.000 fyrirtækjum

Umfang skemmdarverkanna er enn að koma í ljós og hefur fjöldi fyrirtækja sem orðið hafa fyrir tjóni reynst meiri en fyrstu upplýsingar gáfu til kynna.

Alain Di Crescenzo, forseti frönsku viðskipta- og iðnaðarráðanna, sagði í viðtali við RTL að meira en 2.000 fyrirtæki hefðu orðið fyrir beinu tjóni vegna rána og óeirða um helgina. Hann áætlaði að fjárhagslegt tjón næmi hundruðum milljóna evra.

Fyrstu upplýsingar á sunnudagskvöld bentu til þess að um 1.500 fyrirtæki hefðu orðið fyrir skemmdum, en þá vantaði enn tölur frá nokkrum borgum. Di Crescenzo sagði jafnframt að óeirðir hefðu haldið áfram í að minnsta kosti fjórum borgum síðastliðna nótt.

Á meðan stendur umfangsmikil hreinsunarvinna yfir í París og fleiri borgum þar sem starfsmenn sveitarfélaga fjarlægja glerbrot, brunnar bifreiðar, skemmd reiðhjól og aðrar leifar óeirðanna.

Yfir 700 í gæsluvarðhaldi í París

Saksóknaraembættið í París greindi frá því að meira en 700 manns hefðu verið settir í gæsluvarðhald í tengslum við óeirðirnar á laugardag og sunnudag.

Alls voru 855 handteknir vegna atburða laugardagsins og 557 þeirra úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Gæsluvarðhald 278 einstaklinga var framlengt, meðal annars vegna gruns um þjófnaði og rán í verslunum við Champs-Élysées, Châtelet, Saint-Lazare og République.

Á sunnudag voru 208 til viðbótar handteknir í París og 145 þeirra úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Fyrstu málin áttu að koma fyrir dómstóla á mánudag.

Á landsvísu hafa yfir 2.500 manns verið handteknir vegna óeirðanna.

Louvre lokað og samkomubann í Marseille

Mótmæli héldu áfram í París á mánudag þegar hópur námsmanna lokaði aðgangi að Louvre-listasafninu. Mótmælendurnir sögðust vilja sýna samstöðu með framhaldsskólanemum og mótmæla aðgerðum lögreglu. Vegna aðgerðanna gat safnið ekki opnað dyr sínar fyrir almenningi.

Í Marseille gripu yfirvöld jafnframt til þess ráðs að banna allar mótmælasamkomur og opinberar fjöldasamkomur frá hádegi til klukkan átta um kvöldið vegna óeirðanna.

Lecornu hefur einnig sakað hópa sem hann tengir við öfgavinstrið um að reyna að skapa upplausn í landinu í aðdraganda forsetakosninganna árið 2027. Jean-Luc Mélenchon, leiðtogi La France Insoumise, hefur krafist þess að forsætisráðherrann leggi fram gögn til stuðnings þeim ummælum.

Óeirðirnar hafa áhrif á fjármálamarkaði

Ástandið hefur einnig haft áhrif á fjármálamarkaði, þar sem verð franskra ríkisskuldabréfa hefur lækkað og ávöxtunarkrafa þeirra hækkað.

Á mánudag fór ávöxtunarkrafa tíu ára franskra ríkisskuldabréfa í 4,90%, en til samanburðar var ávöxtunarkrafa sambærilegra þýskra skuldabréfa 3,43%.

Munurinn á ávöxtunarkröfu ríkjanna var sá mesti í tvær vikur. Hlutabréf í París hafa einnig lækkað meira en á öðrum evrópskum mörkuðum, en óeirðirnar bætast við þann vanda sem franska ríkið stendur frammi fyrir vegna mikillar skuldsetningar og fjárlagahalla.

Macron heldur í utanlandsferð þrátt fyrir óeirðirnar

Emmanuel Macron Frakklandsforseti hélt á mánudag í þriggja daga heimsókn til Persaflóaríkjanna þrátt fyrir áframhaldandi óeirðir heima fyrir.

Forsetinn hóf heimsóknina í Kúveit og á einnig fyrirhugaða viðkomu í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Barein og Katar.

Macron sagði í ávarpi sínu til þjóðarinnar á sunnudag að heimsóknin tengdist meðal annars því að tryggja Frakklandi nægilegt framboð af olíu og jarðgasi.

Mótmælin breiðast út til fleiri Evrópuríkja

Mótmælin er einnig farin að breiðast út í öðrum Evrópuríkjum samhliða óeirðunum í Frakklandi. Á Ítalíu, Spáni og í Portúgal hefur fólk mótmælt undir yfirskini versnandi lífskjara og hækkandi húsnæðiskostnaði, en í Mílanó kom til átaka í tengslum við mótmæli um helgina.

Giuseppe Sala, borgarstjóri Mílanó, lýsti áhyggjum af þróuninni og sagði að um nýtt fyrirbæri væri að ræða sem tengdist alþjóðlegu ástandi og gæti magnast enn frekar.

Á Spáni hafa hundruð tjalda verið reist á Puerta del Sol-torginu í miðborg Madrídar, þar sem mótmælendur hafa haldið til frá því í september. Mótmælin hófust eftir að 87 ára konu var vísað úr íbúð sinni og leiddu þau til fjölmennra mótmæla víðs vegar um landið vegna húsnæðisskorts og hækkandi húsnæðisverðs.

Í Portúgal hafa mótmælendur einnig komið upp tugum tjalda í Lissabon og Porto og krafist aðgerða stjórnvalda gegn hækkandi húsnæðiskostnaði.

Gulvestungar boða ný mótmæli 24. október

Fulltrúar gulvestungahreyfingarinnar hafa boðað nýjan mótmæladag næstkomandi laugardag, 24. október, þrátt fyrir óeirðirnar um helgina.

Hreyfingin sameinaði krafta sína með námsmönnum um helgina undir yfirskriftinni „Gult og ungt“, en mótmælin hófust upprunalega vegna óánægju með hækkandi framfærslukostnað og aðstæður í menntakerfinu. Mótmælin hafa breyst hratt í allsherjar ringulreið og í raun stríðsástand.

Benjamin Ball, ritstjóri vefsíðu gulvestungahreyfingarinnar, sagði við AFP að mikill áhugi væri á að halda mótmælunum áfram. Þegar hefur verið birt kort yfir fyrirhugaðar mótmælasamkomur 24. október.

Frönsk stjórnvöld undirbúa nú auknar öryggisráðstafanir fyrir næstu helgi, en ekki hefur tekist að stöðva óeirðirnar. Lecornu hefur lagt áherslu á að koma á lögum og reglu og hefur ekki útilokað neyðarástand ef átökin halda áfram að magnast.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila