Verður vísitölutenging lífeyris að fátækragildru með upptöku evru?

Júlíus Valsson skrifar:

Þegar gólfið verður að þaki

Alþingi samþykkti hinn 19. mars síðastliðinn frumvarp Flokks fólksins þ.e. lög sem lífeyrisþegar höfðu beðið eftir í áratugi þ.e. að greiðslur almannatrygginga skulu framvegis fylgja launavísitölu Hagstofu Íslands og aldrei hækka minna en verðlag. Breytingin kemur til framkvæmda 1. janúar 2027.
Forsagan er flestum kunn. Eldra ákvæðið kvað einnig á um launaþróun með verðlagi sem lágmarki, en í framkvæmd völdu stjórnvöld jafnan þá vísitölu sem lægri reyndist hverju sinni og lífeyrir dróst árum saman aftur úr launum. Sú kjaragliðnun átti nú að heyra sögunni til.

Munu laun á Íslandi halda áfram að hækka?

Verðmæti nýju vísitölutengingarinnar hvílir hins vegar á einni forsendu sem er að laun í landinu haldi áfram að hækka umfram verðlag. Í krónuhagkerfinu hefur sú forsenda haldið. Nafnlaun hafa hækkað um 6 – 9% á ári og kaupmáttur aukist flest ár í rúman aldarfjórðung. Tengingin skilar lífeyrisþegum þeim vexti óskertum. Um bein áhrif ESB-aðildar á launin sjálf þarf ekki að fjölyrða hér því launaákvarðanir eru utan valdheimilda sambandsins og kjarasamningar yrðu áfram innlendir. Það er hins vegar gjaldmiðillinn sem breytir myndinni.

Hver yrðu áhrifin af upptöku evru?

Aðild Íslands að ESB felur í sér skuldbindingu um upptöku evru. Innan evrusvæðisins hækka nafnlaun alla jafna um 2 – 3% á ári. Það þarf ekki að rýra kaupmátt meðan verðbólga er að sama skapi lág, og í meðalári kynni munur vera lítill. Það er hins vegar áföllin sem skipta mestu máli. Hagkerfi án eigin gjaldmiðils getur hvorki fellt gengið né látið verðbólguna vinna verkið. Aðlögunin færist yfir á vinnumarkaðinn sjálfan og gengur undir nafninu „innri gengisfelling“. Í Eystrasaltsríkjunum 2009–2010 voru laun beinlínis lækkuð með handafli, og Finnar máttu horfa upp á nafnlaun og framleiðslu standa nánast í stað í nærri áratug eftir 2008. Grísk laun féllu árum saman.

Hver verða áhrifin á greiðslur til lífeyrisþega?

Hvað verður þá um greiðslur elli- og örorkulífeyrisþega? Launavísitalan stendur í stað eða lækkar, og lögin frá í mars vísa á gólfið því greiðslurnar munu fylgja verðlagi. Öryggisnetið, sem hugsað var fyrir undantekningartilvik, yrði hin almenna regla. Fyrirheitið um að lífeyrisþegar fylgdu launafólki upp á við stæði óhaggað í orði, en launafólkið færi hvergi, laun þess myndu ekki hækka. Gliðnunin gagnvart launum hyrfi vissulega, en aðeins vegna þess að allir stæðu kyrrir. Þegar stöðnunin hefst þá verður gólfið að þaki.

Hvaða reglur ESB gilda í slíku árferði?

Við þetta bætist að vörnin sem eftir stendur kostar ríkissjóð mest þegar hann má síst við því. Stöðugleika- og vaxtarsáttmáli ESB setur hallarekstri skorður og evruríki í kreppu á fárra kosta völ. Reynslan sýnir hvert er þá leitað. Í Grikklandi var lífeyrir skorinn niður hvað eftir annað með beinni lagasetningu, sem skilyrði fjárhagsaðstoðar. Tenging við launavísitölu hér á landi er almenn lög frá Alþingi og nýtur engrar stjórnarskrárverndar. Alþingi sem stæði frammi fyrir slíkum afarkostum gæti afnumið hana á einu síðdegi, og sagan af eldra ákvæðinu sýnir hve slík fyrirheit svigna þegar að þrengir.

Við hvaða gengi á evru á að miða?

Loks er skiptigengið. Við upptöku evru læsist lífeyririnn, eins og launin, á því gengi sem um semst. Reynist krónan sterk þann dag mælist lífeyririnn hár í evrum og þrýstingurinn á aðlögun niður á við verður eftir því.

Á móti er því haldið fram að evran skili lægri vöxtum og stöðugu verðlagi og að raunvirði lífeyris sé betur borgið í lágri verðbólgu en hárri. Hvort tveggja getur staðist í meðalárinu. En lögin frá í mars voru einmitt sett vegna þess að meðalárið dugði lífeyrisþegum ekki. Þeim var ætlað að tryggja hlutdeild í vexti launa. Í hagkerfi þar sem launavísitalan hreyfist varla er sú hlutdeild lítils virði. Stöðnunin er fátækragildra.

Spurningin sem elli- og örorkulífeyrisþegar ættu að leggja fyrir sjálfa sig fyrir 29. ágúst er því þessi:
Hvers virði er nýfengin trygging fyrir því að greiðslur til lífeyrisþega fylgja launum í mynt þar sem launin standa kyrr þegar á móti blæs?

Segjum NEI þ. 29. ágúst!

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila