
Starfsfólk Franska ríkisútvarpsins hóf tveggja daga verkfall í gær vegna ráðningar Charles Sapin, aðstoðarritstjóra franska vikuritsins Valeurs Actuelles, sem reglulegs álitsgjafa á France Inter. Starfsfólk franska ríkisútvarpsins mótmælir ráðningunni á þeim forsendum að Sapin hafi hægrisinnaðar skoðanir en stjórnendur verja ákvörðunina með vísan til þess að ólík pólitísk sjónarmið eigi að fá að heyrast. Þetta kemur fram í frétt France24.
Stéttarfélög starfsmanna hafa mótmælt ráðningunni og segja pólitísk sjónarmið Sapin og ritstjórnarstefnu Valeurs Actuelles ekki samræmast hlutverki ríkisfjölmiðils. Jean-Luc Mélenchon, leiðtogi róttæka vinstrisins, hefur gengið mun lengra og lýsti ráðningu Sapin í byrjun september sem „yfirtöku fasista“.
Stjórnendur Radio France hafa varið ráðninguna með vísan til þess að opinber fjölmiðill eigi að endurspegla ólík pólitísk sjónarmið. Deilan kemur upp þegar styttist í forsetakosningar í Frakklandi næsta vor þar sem kjörinn verður arftaki Emmanuel Macron.
Pistill Sapin féll niður
Vikulegur pistill Sapin átti að fara í loftið snemma á sunnudagsmorgun en var ekki sendur út vegna verkfallsins. Aðrir dagskrárliðir í morgunútvarpi France Inter féllu einnig niður og tónlist var spiluð í staðinn. Morgundagskrá franceinfo og France Culture, sem einnig tilheyra Radio France, fór hins vegar fram með hefðbundnum hætti.
Valeurs Actuelles lýsir sér sem íhaldssömu tímariti en hefur ítrekað verið umdeilt vegna efnis sem þar hefur birst. Tímaritið hefur meðal annars hlotið dóma vegna opinberra ummæla af kynþáttafordómum.
Um 300 mótmæla ráðningunni
Um 300 þekktir Frakkar, þar á meðal kvikmyndagerðarfólk, rithöfundar og lögfræðingar, birtu grein í Le Parisien á laugardag þar sem ráðning Sapin var gagnrýnd harðlega og þess krafist að hann yrði tekinn úr pólitískum pistli France Inter.
Í hópi undirritaðra voru meðal annars leikkonan Julie Gayet, eiginkona François Hollande fyrrverandi Frakklandsforseta, og Nóbelsskáldið Annie Ernaux. Undirritaðir sögðu að fjölbreytni sjónarmiða yrði að rúmast innan lýðræðislegra gilda og að ekki mætti veita hugmyndum sem þeir telja ógna lýðræði og grundvallarréttindum sérstakt svigrúm undir þeim formerkjum einum.
Treystir Sapin
Céline Pigalle, framkvæmdastjóri France Inter, varði ráðninguna á fimmtudag og sagði mikilvægt að ólík sjónarmið fengju að heyrast á opinberri útvarpsstöð. Hún sagðist treysta Sapin til þess að virða þær reglur sem giltu um útsendingar France Inter og að hann myndi ekki stefna trúverðugleika stöðvarinnar í hættu.
