Veruleg röskun á þjónustu Reykjavíkurborgar vegna óveðursins

Röskun verður á þjónustu Reykjavíkurborgar í dag á meðan appelsínugul veðurviðvörun er í gildi og versta veðrið gengur yfir. Áhersla er lögð á að tryggja að þjónusta við viðkvæma hópa skerðist ekki.

Lágmarksopnun í skólum og frístundum

Veruleg röskun verður á skóla- og frístundastarfi. Í leik- og grunnskólum verður eingöngu lágmarksopnun með takmörkuðu starfsfólki. Foreldrar sem þurfa nauðsynlega að senda börn í skóla eru beðnir um að tilkynna það til skólastjórnenda með tölvupósti. Hefðbundið starf hefst að nýju þegar veðurviðvörun fellur úr gildi.

Velferðarþjónustu forgangsraðað

Tafir geta orðið á heimaþjónustu og verður þjónustu forgangsraðað eftir mikilvægi. Félagsmiðstöðvar verða opnar en gera má ráð fyrir breytingum á dagskrá. Matarþjónusta verður óbreytt þar sem heimsending fer fram á föstum dögum. Þá verður leitast við að halda úti matarþjónustu í félagsmiðstöðvum ef aðstæður leyfa.

Neyðarskýli fyrir heimilislaust fólk verða opin allan daginn og loka ekki yfir dagtíma eins og venja er. Akstursþjónusta fyrir fatlað fólk verður í lágmarki og því ljóst að starfsemi raskast verulega á meðan viðvörun er í gildi. Aðrir starfsstaðir velferðarsviðs verða opnir með hefðbundnum hætti en íbúar eru hvattir til að nýta símaþjónustu frekar en að mæta á staðinn.

Söfn opna eftir að viðvörun lýkur

Búist er við að söfn og menningarhús borgarinnar opni að nýju eftir að veðurviðvörun fellur úr gildi. Sundlaugar Reykjavíkurborgar verða lokaðar á meðan viðvörunin er í gildi.

Smelltu hér til þess að skoða vef Veðurstofu Íslands.

Smelltu hér til þess að skoða vef Vegagerðarinnar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila