
Viðreisn mun bjóða fram í Ísafjarðarbæ í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fara 16. maí næstkomandi. Flokkurinn hefur hingað til verið hluti af Í-listanum en ekki náðist samkomulag um áframhaldandi samstarf á þeim grunni.
Samstarfi Í-listans lokið í sátt
Fram kemur að þeir flokkar sem staðið hafi að Í-listanum skilji í sátt og með þökk fyrir samstarf undanfarinna ára. Viðreisn hyggst því sækja fram undir eigin merkjum með hag bæjarfélagsins og íbúa þess að leiðarljósi.
Uppstilling hafin
Uppstillinganefnd hefur hafið störf og mun á næstu dögum vinna að því að stilla upp framboðslista fyrir kosningarnar. Samkvæmt tilkynningu er mikill hugur í flokksfólki á svæðinu og gert ráð fyrir virkri kosningabaráttu á næstu mánuðum.
Áhugasamir hvattir til að taka þátt
Viðreisn hvetur áhugasama til að taka þátt í starfinu, hvort sem um ræðir framboðssæti eða almenna þátttöku í undirbúningi. Þeir sem vilja kynna sér málið frekar geta haft samband við uppstillinganefnd flokksins eða sent tölvupóst á netfangið [email protected].
