
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Baldur Borgþórsson og Sigfús Aðalsteinsson, frambjóðendur flokksins Okkar borgar – Þvert á flokka, í Síðdegisútvarpinu um móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd og ráðstöfun félagslegs húsnæðis í Reykjavík. Þar kom fram að þeir telji núverandi samninga milli ríkis og Reykjavíkurborgar hafa leitt til þess að fjárhagsleg og félagsleg ábyrgð færist í auknum mæli yfir á borgina að 2 árum liðnum, frá komu viðkomandi til landsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Ábyrgð flytjist yfir á sveitarfélagið
Í umræðunni kom fram að samkvæmt gildandi þjónustusamningum standi ríkið undir kostnaði vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd, fyrstu 2 árin eftir komu þeirra. Að þeim tíma liðnum taki sveitarfélög í auknum mæli við þjónustu og kostnaði. Í máli Sigfúsar kom fram, að stefna Okkar borgar geri ráð fyrir að þessum samningum verði sagt upp, þannig að ríkið taki aftur við ábyrgð á þjónustu við þennan hóp.
Félagslegt húsnæði og álag á kerfi borgarinnar
Þá var rætt um stöðu Félagsbústaða og bentu þeir á að félagslegt leiguhúsnæði hafi í auknum mæli verið nýtt til að mæta húsnæðisþörf umsækjenda um alþjóðlega vernd. Að þeirra mati hafi það áhrif á biðlista eftir slíku húsnæði meðal íbúa borgarinnar og aukið álag á félagsþjónustu. Fram kom að einstaklingar sem fá tímabundið húsnæði í öðrum sveitarfélögum geti síðar flutt lögheimili sitt til Reykjavíkur, með þeim afleiðingum að áframhaldandi þjónusta falli á félagskerfi borgarinnar. Bent var á að þessi þróun kalli á endurskoðun á ábyrgðarskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
