Vill færa þjóðaratkvæðagreiðslu til 17. október

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra í Síðdegisútvarpinu um tímasetningu og meðferð fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Guðrún sagði að rétt væri að færa atkvæðagreiðsluna til 17. október til að tryggja vandaða umfjöllun og að þjóðin hefði raunhæft svigrúm, til að kynna sér málið, áður en hún tæki afstöðu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Vill tryggja nægan tíma fyrir umræðu

Guðrún sagði að núverandi tímasetning, 29. ágúst, væri of nálægt þinglokum og sumarhléi til að tryggja eðlilega og upplýsta umræðu. Með því að færa kosninguna fram á haustið skapist betra svigrúm fyrir Alþingi til að fjalla um málið og kalla eftir nauðsynlegum upplýsingum. Hún lagði áherslu á að þjóðin ætti rétt á því að fá skýra og ítarlega mynd af málinu áður en hún gengur að kjörborðinu og að slíkt væri ekki tryggt með núverandi tímasetningu.

Of skammur tími til þinglegrar meðferðar

Hún rakti að fyrri umræða um þingsályktunartillöguna hefði lokið og að málið færi nú til utanríkismálanefndar. Að hennar mati er tíminn fram að þinglokum of naumur til að vinna málið af þeirri nákvæmni sem tilefni er til. Hún benti á að þingfundadagar væru fáir fram undan vegna páskahlés, sveitarstjórnarkosninga og fyrirhugaðra þingloka 12. júní. Í því samhengi sagði hún að óforsvaranlegt væri að keyra málið í gegn á þessum hraða og boða þjóðaratkvæðagreiðslu þegar Alþingi væri ekki að störfum.

Óskar eftir aðkomu Feneyjarnefdar Evrópuráðsins

Þá sagði Guðrún jafnframt að orðalag spurningarinnar þyrfti að vera skýrara svo kjósendur vissu nákvæmlega um hvað væri verið að greiða atkvæði. Hún kvaðst hyggjast óska eftir aðkomu Feneyjanefndar Evrópuráðsins til að meta hvort spurningin uppfyllti kröfur um skýrleika og réttmæti. Að hennar mati er mikilvægt að slíkt ferli standist allar kröfur um vandaða stjórnsýslu og traust.

Telur núverandi tímasetningun þjóna ríkisstjórninni en ekki kjósendum

Í viðtalinu sagði Guðrún, að núverandi dagsetning væri valin með hagsmuni ríkisstjórnarinnar í huga, fremur en hagsmuni kjósenda. Hún taldi að verið væri að velja tímabil þar sem minni líkur væru á ítarlegri umræðu og gagnrýninni eftirfylgni. Hún sagði að slíkt gæti grafið undan trausti á ferlinu og lagði áherslu á að mikilvægt væri að þjóðin fengi raunhæft svigrúm til að mynda sér upplýsta afstöðu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila