
Í nýrri rannsókn kemur fram, að vindmyllur á hafi úti hafi mikil áhrif á litla lóma.
Í þýskri rannsókn rannsökuðu vísindamenn hvernig stofnar smálóms í Norðursjó urðu fyrir áhrifum á árunum 2010 til 2017 – fyrir og eftir að garðar vindorkuvera á fimm svæðum voru reistar.
94% fuglanna hurfu í eins kílómetra radíus frá vindorkuverunum og um helmingur fuglanna forðaðist vindorkuverin í tíu kílómetra fjarlægð.
Vísindamaðurinn Martin Green segir í samtali við sænska ríkisútvarpið, að það versta sé, að fuglarnir neyðast til að hverfa frá eðlilegum stöðum við fæðuöflun og því sé mjög mikilvægt að mið sé tekið af niðurstöðum rannsóknarinnar við skipulagningu nýrra vindorkuvera.
