
Júlíus Valsson skrifar:
Viskí var um tíma kynnt sem arðbær fjárfesting við hlið myndlistar, víns og úra. Sjaldgæfar flöskur og heilu tunnurnar seldust fyrir háar fjárhæðir og fjárfestar í Asíu og Bandaríkjunum ýttu verðinu upp. Nú hefur staðan breyst. Offramleiðsla hefur leitt til vaxandi birgða, eftirspurn hefur minnkað og yngra fólk drekkur minna áfengi. Viskí er því orðið mun áhættusamari fjárfesting en það virtist vera fyrir fáeinum árum.
Salan hefur minnkað
Sölumagn skosks viskís minnkaði um fjögur prósent á síðasta ári. Samdrátturinn hefur veruleg áhrif á Skotland, þar sem greinin veitir meira en 40.000 manns atvinnu og skilar um 5,3 milljörðum punda inn í hagkerfið. Samkvæmt Financial Times leita nokkrar skoskar eimingarstöðvar nú að nýjum eigendum. Aðrir framleiðendur hafa dregið úr framleiðslu eða stækkað geymslur sínar til að koma fyrir tunnum sem ekki seljast.
Nær fjórðungur rúmlega 150 eimingarstöðva í Skotlandi var stofnaður á uppgangstímabili síðustu tuttugu ára. Ný fyrirtæki eiga nú í erfiðri samkeppni við eldri og þekktari vörumerki, einkum þegar kaupendum fækkar. Vandinn einskorðast þó ekki við smærri eimingarstöðvar. Fimm stærstu áfengisframleiðendur heims, Diageo, Pernod Ricard, Campari, Brown-Forman og Rémy Cointreau, eiga samanlagt óselt áfengi að verðmæti sem samsvarar meira en 16 milljörðum spunda.
Miklar birgðir óseldar
Þessar birgðir binda mikið fjármagn. Viskí þarf auk þess að geyma árum saman áður en það verður söluhæft og kostnaðurinn eykst þegar sala dregst saman. Framleiðendur höfðu aukið framleiðslu á meðan heimsfaraldurinn stóð yfir, þegar áfengisneysla jókst. Vonir stóðu til þess að mikil eftirspurn héldist. Í stað þess fylgdu verðbólga, þrengri fjárhagur heimila og breyttar neysluvenjur.
Minnkandi áfengisdrykkja
Minnkandi áfengisdrykkja ungs fólks getur haft langvarandi áhrif á greinina. Yngri neytendur leggja meiri áherslu á heilsu, drekka hóflegar og velja oftar aðrar drykkjarvörur en viskí. Samdráttur í starfsemi næturklúbba er einnig talinn endurspegla breytta drykkjarmenningu. Viskíframleiðendur geta því ekki treyst því að nýjar kynslóðir kaupi sömu vörur og fyrri kynslóðir.
Er viskí arðbær fjárfesting?
Mikil verðhækkun á sjaldgæfum flöskum ýtti undir þá hugmynd að viskí væri örugg fjárfesting. Verðmæti átján ára Macallan-viskís jókst um 142 prósent árið 2016. Árið 2023 seldist Macallan-flaska frá 1926 fyrir jafnvirði 2 milljóna punda. Árið áður keypti asískur fjárfestir tunnu frá Ardbeg fyrir um 16 milljónir punda.
Slík metkaup segja þó lítið um almenna stöðu markaðarins. Sérfræðingar telja að uppgangurinn hafi náð hámarki árið 2023. Sama ár lækkaði verð á dýrum safngripum um níu prósent samkvæmt Knight Frank og hefur lítið hækkað síðan. Edrington, eigandi Macallan og Highland Park, greindi jafnframt frá 23 prósenta samdrætti í hagnaði milli ára.
Viskí getur áfram haft verðgildi fyrir safnara. Miklar birgðir, minni sala og breytt viðhorf yngri neytenda draga þó úr líkum á áframhaldandi verðhækkunum. Kaup á flösku eða tunnu tryggja ekki ávöxtun. Markaðurinn ber nú öll einkenni þess að framboðið hafi vaxið hraðar en raunveruleg eftirspurn.
