
Júlíus Valsson læknir skrifar:
Á flestum bryggjum landsins stendur lítill skúr með glugga að hafnarvoginni. Þar situr maður sem á hvorki bátinn né fiskinn, skráir það sem vogin sýnir og réttir nótuna út um lúguna. Honum stendur á sama hvort körin reynast þung eða létt. Fyrirkomulagið er gamalt og fremur leiðinlegt, en hefur dugað vegna þess að fátt vekur meira traust en þegar sá vegur sem engra hagsmuna á að gæta.
Undirritaður er læknir og hefur aldrei vegið annað en sjúklinga. Þessi skúr kom honum þó í hug þegar fréttist að Röst sjávarrannsóknasetur ehf. hefði fengið leyfi til að blanda vítissóda í Hvalfjörð.
Leyfið
Utanríkisráðuneytið gaf leyfið út 8. september. Samkvæmt Röst fara 170.000 lítrar af vatnsþynntri basalausn í yfirborðssjó fjarðarins á fjórum dögum, í áföngum sem sagðir eru 11.000, 43.000 og 115.000 lítrar. Þar hafa eitt þúsund lítrar orðið viðskila við samlagninguna.
Þurrefnið er átta tonn af natríumhýdroxíði, þ.e. vítissóda, og markmiðið að kanna hvort auka megi getu sjávar til að taka upp koldíoxíð.
Sama ráðuneyti hafnaði sambærilegri umsókn 9. maí 2025 á þeim forsendum að hvorki lægi fyrir stefna né reglur um slíkar aðgerðir. Í júní síðastliðnum birtust síðan frumvarpsdrög þar sem lagt er til að leyfi til rannsókna af þessu tagi verði háð mati á áhrifum og gefin út af Umhverfis- og orkustofnun. Frumvarpið hefur enn ekki orðið að lögum. Leyfið í Hvalfirði var veitt eftir eldri reglum. Því liggur á núna.
Skúrinn
Málið er flókið. Hafrannsóknastofnun var umsagnaraðili ráðuneytisins bæði í fyrra og nú, en vann jafnframt grunnrannsóknir í firðinum fyrir fé frá Röst. Röst segir upphæðina hafa verið 40 milljónir króna, en leigutaki Laxár í Kjós hefur nefnt 100 milljónir í tveimur áföngum. Hvorug talan fæst lesin af vigtarnótu.
Röst segir verkið hafa verið boðið út og Hafrannsóknastofnun metna hæfasta. Í umsögn hennar frá 12. febrúar 2025 kemur fram að starfsmaður stofnunarinnar sitji í ráðgjafaráði Rastar „á eigin vegum“ og hafi þess vegna ekki komið að málinu. Stofnunin sjálf vék þó ekki sæti.
Formaður stjórnar Rastar er jafnframt forstöðumaður vettvangsrannsókna hjá Carbon to Sea, bandarískum samtökum sem greiða kostnaðinn og hafa, að sögn Rastar, fengið um sjö milljarða króna til verkefna á þessu sviði. Ekkert af þessu er ólöglegt og fátt hefur farið leynt. En fjárhagsleg tengsl verða ekki sjálfkrafa ómerkileg þótt þau séu opinber.
Afraksturinn
Binding koldíoxíðs verður ekki mæld beint. Að ná jafnvægi milli lofts og sjávar tekur mánuði og basinn verður löngu áður orðinn ógreinanlegur frá náttúrulegum sveiflum. Niðurstaðan verður því að miklu leyti lesin úr reiknilíkani, og það líkan af Hvalfirði lét Röst smíða. Hver annar?
Framleiðsla átta tonna af vítissóda losar að sögn fimm til sautján tonn af koldíoxíði eftir orkugjafa, en möguleg binding er um sjö tonn ef allt gengur eftir.
Forstöðumaður Rastar var spurður á mbl.is 8. október hvort útiloka mætti skaða á lífríki fjarðarins og svaraði því játandi. Það er rösklega tekið til orða um tilraun sem enn á eftir að framkvæma.
Aðrar hafnir
Í St Ives-flóa í Cornwall var fallið frá sambærilegum áformum eftir andstöðu heimamanna. Í Maine-flóa frestaði Woods Hole-stofnunin sinni tilraun vegna mótmæla sjómanna. Þegar hún fór loks fram hafði basamagnið verið minnkað um þrjá fjórðu, losunin færð 60 kílómetra frá landi og sjómaður hafður um borð til eftirlits.
Hér var tilkynnt 23. september að opnir fundir með íbúum yrðu haldnir í lok mánaðarins, rúmum tveimur vikum eftir að leyfið hafði verið gefið út.
Nótan
Enginn þarf að undra hvers vegna þetta vekur spurningar. Sá sem leggur upp aflann hefur að verulegu leyti greitt fyrir rannsóknirnar, komið að gerð líkansins og tengist þeim samtökum sem fjármagna verkefnið. Stofnanir sem komu að undirbúningi og umsögnum fara síðan með mikilvægan hluta eftirlitsins.
Röst bendir á að þekkingu á sjávarflæði Hvalfjarðar megi yfirfæra á aðra sambærilega firði. Af þeim eigum við nóg og nóg er til af vítissóda. Menn þurfa bar að vera a undan lögum og reglugerðum.
Sjúklingar undirritaðs hafa, eftir því sem hann best veit, aldrei fengið að koma með vogina að heiman.
