
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, varar við kröfum Þýskalands og fleiri ríkja um mikinn niðurskurð á næstu langtímafjárlögum sambandsins. Hún segir slíkan niðurskurð geta bitnað verulega á mikilvægum verkefnum ESB, meðal annars samkeppnishæfni og sjálfstæði í orkumálum. Þetta kemur fram í umfjöllun Politico. Von der Leyen lét þessi orð falla í ræðu á Evrópuþinginu í Strassborg í gær þegar hún ræddi fyrirhuguð fjárlög ESB fyrir árin 2028–2034.
„Ég vil vara við miklum niðurskurði. Hættan er sú að hann gangi verulega á mikilvæg verkefni sem við höfum öll komið okkur saman um,“ sagði von der Leyen.
Ummælin beinast ekki síst að Þýskalandi, sem ásamt nokkrum ríkjum í Norður-Evrópu krefst þess að útgjöld sambandsins verði lækkuð um hundruð milljarða evra.
Þýskaland vill umfangsmikinn niðurskurð
Framkvæmdastjórn ESB hefur lagt til að sameiginleg fjárlög sambandsins fyrir árin 2028–2034 nemi 1,26% af vergum þjóðartekjum ESB. Von der Leyen hefur áður lýst tillögunni sem metnaðarfyllstu langtímafjárlögum sem framkvæmdastjórnin hafi lagt fram.
Þýsk stjórnvöld telja hins vegar að útgjöldin séu of mikil og hafa ásamt fleiri ríkjum þrýst á Írland, sem nú fer með formennsku í ráðherraráði ESB, að skera verulega niður fyrirhuguð útgjöld.
Friedrich Merz Þýskalandskanslari sagði á mánudag að frá fjárhagslegu sjónarmiði væri hagstæðasta niðurstaðan fyrir Þýskaland að ekkert samkomulag næðist um nýjan fjárhagsramma.
Hann viðurkenndi þó að slík niðurstaða myndi takmarka getu ESB til aðgerða og sagði mikilvægt að ljúka samningaviðræðunum fyrir áramót.
17 ríki leggjast gegn niðurskurði
Mikill ágreiningur er milli aðildarríkjanna um hversu stór fjárlög sambandsins eigi að vera.
Alls hafa 17 ríki í Suður- og Austur-Evrópu, undir forystu Ítalíu og Rúmeníu, tekið höndum saman gegn miklum niðurskurði.
Ríkin vilja meðal annars verja áframhaldandi stuðning við landbúnað og svokallaða samheldnisstefnu ESB, þar sem fjármunum er meðal annars beint til uppbyggingar í tekjulægri ríkjum og héruðum sambandsins.
Luís Montenegro, forsætisráðherra Portúgals, gagnrýndi kröfur um niðurskurð í ræðu á Evrópuþinginu í dag.
Hann sagði framlag Portúgals til sameiginlegra fjárlaga ESB vera hærra sem hlutfall af landsframleiðslu en framlag Þýskalands og annarra ríkari aðildarríkja.
„Að gefa 10 af 100 er miklu meira en að gefa 50 af 1.000,“ sagði Montenegro.
Vill nýja tekjustofna fyrir ESB
Von der Leyen lagði jafnframt áherslu á að sambandið þyrfti að samþykkja nýja sameiginlega tekjustofna til að fjármagna fjárlögin.
Slíkir tekjustofnar myndu afla ESB tekna beint og draga þannig úr því hversu mikið einstök aðildarríki þurfa að greiða úr eigin ríkissjóðum til sameiginlegra fjárlaga.
Deilan snýst því bæði um heildarstærð fjárlaganna og hvernig afla eigi fjár til að standa undir þeim.
Gæti verið skorið niður um meira en 100 milljarða evra
Írska formennskan í ráðherraráði ESB undirbýr nú nýja samningstillögu sem á að færa ríkin nær samkomulagi.
Samkvæmt Politico telja nokkrir embættismenn innan ESB líklegt að tillagan feli í sér meira en 100 milljarða evra niðurskurð frá upphaflegri tillögu framkvæmdastjórnarinnar.
Gert er ráð fyrir að nýjar tölur verði kynntar á laugardag og sendiherrar aðildarríkjanna ræði þær daginn eftir.
Tíminn til samninga er orðinn knappur. Stefnt er að því að ná samkomulagi fyrir lok ársins en kosningar fara fram í Frakklandi, Ítalíu og Póllandi á næsta ári og óttast er að þær geti gert samningaviðræðurnar enn erfiðari.
Von der Leyen, hefur nú gert ljóst að framkvæmdastjórnin telur mikinn niðurskurð geta komið niður á þeim verkefnum sem ESB hefur þegar sett í forgang, þar á meðal samkeppnishæfni og auknu sjálfstæði Evrópu í orkumálum.
