
Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, Ursula von der Leyen, hefur heitið 290 milljónum bandaríkjadala til Gavi, alþjóðlegs bólusetningabandalags sem vinnur að útbreiðslu bólusetninga í þróunarríkjum í samvinnu við Bill Gates. Von der Leyen tilkynnti um framlagið á alþjóðlegum viðburði í New York og sagði að markmiðið væri að verja börn gegn alvarlegum smitsjúkdómum. Hún sagði jafnframt að með stuðningi við Gavi væri stefnt að því að bólusetja yfir 500 milljónir barna fyrir árið 2030.
Hluti af áætlun til ársins 2030
Framlagið er tengt nýrri stefnu Gavi fyrir tímabilið 2026–2030. Samkvæmt áætlun bandalagsins er markmiðið að ná til yfir 500 milljóna barna og ungmenna á næstu árum með bólusetningum gegn fjölmörgum sjúkdómum.
Samtökin halda því fram að verkefnið geti bjargað milljónum mannslífa og styrkt heilbrigðiskerfi í fátækari ríkjum þar sem aðgengi að bólusetningum hefur verið takmarkað. Gagnrýnendur hafa aftur á móti bent á að bólusetningar við mörgum sjúkdómnum hafi ekki reynst öruggar og því ætti að fara varlega í þessum efnum.
Evrópusambandið meðal stærstu bakhjarla
Evrópusambandið hefur um árabil verið meðal stærstu stuðningsaðila Gavi og lagt verkefninu til milljarða evra frá stofnun samstarfsins. Áhersla bandalagsins hefur verið á að bólusetja sem flest börn á sem skemmstum tíma Samkvæmt Gavi hafa yfir 1,1 milljarður barna verið bólusett með stuðningi samtakanna frá stofnun þeirra.
