Vorsókn úkranska hersins og sólarferð Dísu

Hallur Hallsson skrifar:

Vorið er komið til Úkraínu með 10 stiga hita, frjósöm úkraínsk jörð tekur við sér og búist er við vorsókn úkraínskra hersins suður og austur fyrir Dnjepr-fljót. Um 50 þúsund hermenn eru sagðir albúnir til orrustu suður á bóginn frá Zaporizihizhia í austri til Kherson í vestri. Markmiðið er sókn niður til Svartahafs og Krímskaga. Rússar bíða átekta með 300 þúsund manns her ef marka má fréttir. Vesturveldin treysta á rússneskt afhroð leiði til falls Vladimirs Pútins í Kreml. Hins vegar er staða úkraínska hersins í vestustu úthverfum Bakmut vonlaus. Um 400 þúsund úkraínskir hermenn eru fallnir og særðir.

HERFLUTNINGAR FRÁ S-KÓREU TIL PÓLLANDS

Linnulitlir herflutningar hafa verið milli S-Kóreu og Rzezow í suð-austur Póllandi þaðan sem eru 170 kílómetrar til Lvyv og um þriggja stunda akstur til Kænugarðs. Risaþotur á vegum Kallitta, National og Atlas hafa flogið frá bandarísku herstöðinni Osan í S-Kóreu yfir til Anchorage í Alaska. Frá Anchorage er flogið yfir Ameríku út á Atlantshafið yfir Ísland þaðan til Póllands. Um er að ræða tugi flugferða. Flugfélög þessi eru þekkt fyrir svarta flutninga. Sautján amerískar herstöðvar eru í S-Kóreu. Í hverri ferð eru um 120 tonn af varningi. Fremur ólíklegt er talið að túlipanar séu í farmi. Menn giska á að Ameríka sé að flytja hergögn frá amerískum herstöðvum nú þegar vopnabirgðir eru tæmdar á heimaslóð. Gríðarleg sprenging var í olíustöð við Sevestapol á Krímskaga fyrir helgina. Tíu manns fórust í strætisvagni í Donetsk eftir úkraínska drónaárás. Líklegt er að úrslita orrusta úkraínsk/rússneska stríðsins sé á næsta leiti.

RÁÐFREYJUR Í FAÐMLÖGUM

Íslenskar ráðfreyjur halda áfram að faðma úkraínska kollega. Við munum innilegt faðmlag Kötu og Volodymyr forseta í Kænugarði. Um daginn faðmaði Dísa okkar Dmytró Kúleba utanríkisráðherra afar innilega. Þau voru í rómantískri sólarferð til Odessu við ósa Dónár sem Snorri Sturluson kallaði Vönukvísl þar sem Óðinn var með blótstað mikinn og hafði sigur í hverri orrustu. Forvitnilegt er að vita hvort Dísa hafi spurt Dmýtro um brunann í Odessa þegar fjörtíu og átta Rússar voru brenndir í Alþýðuhúsinu í maí 2014 fáum mánuðum eftir að Victoría Nuland aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna hafði gert sér ferð til Kænugarðs frá Washington til að dreifa kökum meðal fólks í Kænugarði.

DÍSA & KATRÍN MIKLA

Katrín Jekaterína Aleksejevna mikla keisaraynja [1729-1796] stofnaði Odessu nútímans árið 1794. Dmýtro kann að hafa sagt íslensku alþýðu-Dísu frá hlut Katrínar miklu í rússneskri sögu. Íslendingar þekkja Odessu frá tíð Sovétríkjanna þegar rússaolían kom frá Svartahafi. Dmýtro kann að hafa frætt Dísu um ástæður þess að rússneskum íbúum var bannað að tala rússnesku og ástæður þess að úkraínsk stjórnvöld fóru með stríði gegn eigin þegnum. Hún kann að hafa spurt Dmýtro hvort rússneska sé ekki örugglega hans fyrsta tungumál líkt og Volodymyr. Ég efast ekki um að Dísa hefur frætt Dmýtro um lýðræðisgildi Brussel og sagt sögur af afa Ulriku Albrecht van der Leyen höfuðkómizars í Brussel. Afi Albrecht stýrði hernumdri Úkraínu fyrir Hitler 1941-1943. Dmýtro hefur áreiðanlega útskýrt ástæður þess að nazistinn Stephan Bandera er yfirlýst þjóðhetja í Úkraínu. Skötuhjúin hafa áreiðanlega haft nægan tíma til að spjalla.

Og í lokin. Var Victoría með kökur þegar Dísa faðmaði Jóa Biden í Hvíta Húsinu? Dísu hefur gefist frábært tækifæri til að spyrja Biden um Tölvuna frá Helvíti; Laptop-from-Hell. Þar má fræðast eitt og annað um góðverk Biden-feðga í Úkraínu, meðal annars þeim sem lúta að amerískum sýklasmiðjum. Svona er nú diplómatíkin okkar mikilvæg.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila