
Alice Weidel, annar formaður þýska hægriflokksins Alternative für Deutschland (AfD), krefst þess að Þýskaland stöðvi tafarlaust alla aðstoð við Úkraínu, þar á meðal hernaðaraðstoð. Hún segir jafnframt að aðild Úkraínu að Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu (NATO) sé „algjörlega óásættanleg“. Weidel lét ummælin falla á kosningafundi í Magdeburg þar sem hún sagði AfD ætla að beita sér fyrir friðarviðræðum ef flokkurinn kæmist til valda.
Vill stöðva alla fjárhags- og hernaðaraðstoð
„Við þurfum á diplómatíu milli Vesturlanda og Austurlanda að halda,“ sagði Weidel. Hún sagði að AfD myndi tryggja frið í Úkraínu með því að knýja fram friðarviðræður til að binda enda á það sem hún kallaði tilgangslaust mannfall. „Þess vegna munum við stöðva alla aðstoð við Úkraínu – enga fleiri skattpeninga, engin vopn og enga þýska hermenn. Fyrir okkur kemur aðild Úkraínu að Evrópusambandinu og NATO alls ekki til greina,“ sagði hún. Þá benti hún á að Zelensky og menn í hans innsta hring væru flæktir í spillingar mál sem tengjast orkugeiranum, því verði ekki unað við að setja meira fé til Úkraínu.
Vill viðræður við Rússland, Bandaríkin og Kína
Weidel sagði jafnframt að Þýskaland ætti að taka upp viðræður við Rússland, Bandaríkin og Kína.
„Þessi ríki eru mikilvægir viðskiptapartnar og það er fullkomlega eðlilegt. Hver skynsöm þýsk ríkisstjórn ætti að fylgja slíkri stefnu en sú núverandi gerir nákvæmlega hið gagnstæða,“ sagði hún.
Umræða um stuðning við Úkraínu
Úkraína hefur haft stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu frá árinu 2022. Frekari stækkun sambandsins hefur þó mætt varkárni meðal aðildarríkja og sú umræða nær einnig til annarra umsóknarríkja.
Afstaða AfD endurspeglar áframhaldandi pólitískar deilur í Þýskalandi um umfang stuðnings við Úkraínu, bæði hernaðarlega og fjárhagslega, á sama tíma og flokkurinn hefur ítrekað kallað eftir því að friðarviðræður hefjist og að samskipti við Rússland verði tekin upp á ný.
