Yfir 8.000 flóttamenn og farandfólk komið til Kanaríeyja á fimm vikum

Yfir 8.000 flóttamenn og farandfólk hafa komið til Kanaríeyjunnar El Hierro á síðustu fimm vikum og hafa yfirvöld á eyjunni lýst yfir félagslegu neyðarástandi vegna mikils álags á innviði og opinbera þjónustu. Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, hefur samþykkt að boða til neyðarfundar ráðherranefndar um innflytjendamál á þriðjudag til að ræða ástandið og nauðsynlegar aðgerðir. Euronews greinir frá.

Samkvæmt upplýsingum frá stjórnvöldum á Kanaríeyjum komu 4.587 flóttamenn og farandfólk til eyjaklasans á 49 bátum dagana 1.–6. nóvember. Þar af komu 35 bátar til El Hierro, þar sem yfirvöld lýsa álaginu á þjónustu og aðstöðu sem óvenjumiklu.

Krefjast tafarlausra aðgerða frá spænskum stjórnvöldum

Fernando Clavijo, forseti heimastjórnar Kanaríeyja, hefur rætt við Sánchez um alvarlega stöðu mála á El Hierro og vaxandi óánægju íbúa vegna fjölda komufólks.

Clavijo segir heimastjórnina hafa óskað eftir auknu fjármagni, betra skipulagi og samræmdum aðgerðum spænskra stjórnvalda mánuðum saman án þess að fullnægjandi lausn hafi fengist.

Hann leggur áherslu á að neyðarfundurinn á þriðjudag verði að skila skýrri aðgerðaáætlun þar sem ábyrgð einstakra ráðuneyta og tímasetningar framkvæmda verði skilgreindar.

„Fundurinn verður að leiða til sameiginlegrar aðgerðaáætlunar stjórnvaldanna með skýrum aðgerðum, ábyrgð og tímamörkum. Við getum ekki haldið áfram að bregðast aðeins við þegar ástandið versnar,“ skrifaði Clavijo á samfélagsmiðlum.

El Hierro undir miklu álagi

Mikill fjöldi fólks hefur komið til El Hierro á skömmum tíma og hafa sveitarstjórnaryfirvöld lýst yfir félagslegu neyðarástandi.

Á aðeins sex dögum í byrjun nóvember komu 35 bátar til eyjunnar, en alls hafa yfir 8.000 manns komið þangað á fimm vikum.

Yfirvöld telja að umfang komanna sé orðið slíkt að ekki sé hægt að mæta þörfinni fyrir móttöku og þjónustu án aukinnar aðstoðar frá spænsku ríkisstjórninni.

Kanaríeyjar óska eftir aðstoð Evrópusambandsins

Clavijo hefur einnig óskað eftir áríðandi fundum með Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og Magnus Brunner, framkvæmdastjóra ESB sem fer með innanríkis- og fólksflutningamál.

Hann telur að ástandið á Kanaríeyjum sé ekki eingöngu innanríkismál Spánar heldur krefjist það sameiginlegra viðbragða spænskra stjórnvalda og Evrópusambandsins.

„Kanaríeyjar geta ekki haldið áfram að takast nánast einar á við ástand sem krefst þátttöku spænsku ríkisstjórnarinnar og Evrópu,“ sagði Clavijo.

Á neyðarfundinum á þriðjudag verður rætt hvernig stjórnvöld geti brugðist við auknum fjölda komufólks, létt álagi af El Hierro og tryggt nauðsynlegt fjármagn og samhæfingu milli þeirra stofnana sem koma að móttöku fólksins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila