Yfirheyrsla Anthony Fauci markar nýjan kafla í rannsóknum á COVID 19

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson, ræddu við Guðmund Karl Snæbjörnsson, lækni í síðdegisútvarpinu, um yfirheyrslu Anthony Fauci, fyrrverandi sóttvarnalæknis Bandaríkjanna, fyrir nefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings og hvaða áhrif málið gæti haft á framhald rannsóknar vegna COVID-19. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Yfirheyrslan upphaf umfangsmikillar rannsóknar

Guðmundur Karl eða Kalli Snæ eins og hann er kallaður, lýsti yfirheyrslu Fauci sem upphafi umfangsmikillar rannsóknar á ákvörðunum sem teknar voru á meðan COVID-19-faraldurinn stóð sem hæst og hvernig covid veiran varð að veruleika. Þessar yfirheyrslur hafi varpað ljósi á framgöngu Fauci og því haldið fram að hann hafi vísvitandi gefið villandi og rangar upplýsingar sem hafi afvegaleitt forseta Bandaríkjanna og fjölda stjórnenda í heilbrigðisþjónustu víða um heim. Rannsakað yrði hvernig stefna bandarískra heilbrigðisyfirvalda var mótuð og hvaða forsendur lágu að baki mikilvægustu ákvörðununum.

Í umræðunni kom fram að rannsóknin gæti haft áhrif langt út fyrir Bandaríkin þar sem ráðleggingar og yfirlýsingar Fauci hefðu haft áhrif á stjórnvöld og heilbrigðisyfirvöld víða um heim, þar á meðal á Íslandi.

Fauci vísaði ítrekað til lögmanna sinna

Pétur vakti athygli á því að Fauci hefði 111 sinnum neitað að svara spurningum nefndarinnar og vísað til ráðgjafar lögmanna sinna. Guðmundur Karl sagði það vekja athygli að maður sem hefði gegnt jafn áhrifamiklu embætti skyldi ekki veita skýr svör um atriði sem hefðu haft áhrif á milljónir manna.

Arnþrúður benti jafnframt á að yfirheyrslan hefði fengið litla umfjöllun í íslenskum fjölmiðlum þrátt fyrir að um væri að ræða mikilvægan atburði sem gæti varpað ljósi á hvernig ákvarðanir stjórnvalda hafi verið teknar og hvernig upplýsingar hafi borist.

Ný gögn gætu breytt umræðunni um faraldurinn

Guðmundur Karl sagði að eftir því sem fleiri gögn kæmu fram gæti myndin af ákvörðunum sem teknar voru á fyrstu 2 árum faraldursins orðið skýrari. Hann taldi yfirheyrsluna aðeins fyrsta skrefið og frekari yfirheyrslur, skýrslur og rannsóknir gætu fylgt í kjölfarið.

Í umræðunni kom einnig fram að þróun málsins í Bandaríkjunum yrði fylgt grannt eftir þar sem niðurstöður rannsóknarinnar gætu haft áhrif á alþjóðlega umræðu um stjórnun heimsfaraldra, ábyrgð embættismanna og þær ákvarðanir sem teknar voru á tímum COVID-19.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila