YFIRHYLMINGIN

Hallur Hallsson skrifar:

Pulitzer blaðamaðurinn Seymour Hersh hefur á Substack-síðu sinni skýrt frá því að bandarísk stjórnvöld hafi samið falsfréttir til þess að hylma yfir hryðjuverkið á Nord Stream gasleiðslunum 26. september 2022. CIA hafi samið nýja útgáfu; cover story til þess að koma á New York Times þess efnis að að Joe Biden forseti hafi EKKI gefið skipun um hryðjuverkið í Eystrasalti. Þýska leyniþjónustan, sem gegnir því langa nafni Bundesnachrichtendienst hafi séð um Die Zeit. Sy Hersh er stærsta nafn bandarískrar blaðamennsku í rúmlega 50 ár.

Sy Hersh skrifar: „Það var orðað svo af njósnasamfélaginu; intelligence community, að CIA átti að dæla inn á kerfið; pulse the system með það markmið að grafa undan fréttum þess efnis að Biden hafi skipað fyrir um eyðileggingu gasleiðslanna,“ skrifar Hersh á Substack-síðu sína og vitnar í nafnlausan heimildarmann í njósnasamfélaginu. New York Times og þýskir kollegar á Die Zeit, birtu fréttir um að leynilegur úkraínskur hryðjuverkahópur á lúxus seglskútu hafi komið fyrir sprengjum á botni Eystrasalts þar sem gasleiðslurnar voru. Hringekjan fór svo af stað af hálfu orwellska Trusted News samstarfinu. „Þetta [sagan um seglskútuna] var uppspuni sem var komið til Þjóðverja til þess að grafa undan trúverðugleika fréttar þinnar,“ sagði heimildarmaður innan bandaríska njósnasamfélagsins við Hersh sem bætti við: „Spunameistarar CIA vita að áróðurs bragð heppnast þá aðeins að þeir á hinum endanum þrái sögu sem komi í stað óþægilegs sannleika; unconvenient truth. Sannindin eru að Joe Biden forseti fyrirskipaði eyðileggingu gasleiðslanna,“ skrifar Hersh.

LITLI BRÓÐIR Í WASHINGTON

Olaf Scholz hitti Joe Biden í Washington í byrjun mars. Það voru engir þýskir blaðamenn í fylgd kanslarans, enginn fréttamannafundur, enginn kvöldverður, engar yfirlýsingar, engin áhætta tekin um óþægilegan sannleika; unconvenient truth. Þjóðverjar sáu sem var að Scholz er litli bróðir og Biden stóri bróðir. CNN fékk að taka viðtal við Scholz og nefndi bara alls ekki gasleiðsluna sem er stærsta mál þýsks almennings. Gasverð hafði meir en sex-faldast frá upphafi Úkraínustríðs, tífaldaðist um haustið með hryðjuverkinu á Nord Stream. Evruprentun fór í yfirgír. 800 milljarðar evra voru settar í niðurgreiðslur til að lina þjáningar íbúa Evrópu. CNN ræddi þetta bara alls ekki, CNN ræðir ekki óþægindi sem koma Biden illa. Orkuverð er nú þrefalt hærra í Evrópu en Ameríku. CIA – Central Intelligence Agency – var sem sagt beðin um nýja útgáfu; cover story af hryðjuverkinu. CIA skilaði af sér sögu um seglskútu og tengdi við úkraínskan hryðjuverkahóp. Fjölmiðlahringekja Trusted News fór af stað.

P8 ÞOTAN FRÁ KEFLAVÍKURFLUGVELLI

Ég hef sagt frá frétt Sy Hersh í febrúar síðastliðnum um að Bandaríkin hefðu verið á bak við hryðjuverkið á Nord Stream gasleiðslunum í Eystrasalti í september 2022 sem var unnið í samvinnu við Norðmenn. Hvíta Húsið hefur þvertekið fyrir að vera á bak við hryðjuverkið, sem og norsk stjórnvöld. P8 þotan sem hóf sig til flugs frá Keflavíkurflugvelli síðla kvölds 25.september sveimaði yfir gasleiðslunum um nóttina sem þýðir sterkar líkur eru á íslenskri aðild að mesta mengunar hryðjuverki sögunnar. Á Íslandi ríkir alger þögn af hálfu stjórnvalda og fjölmiðla sem þiggja fé úr ríkissjóði; rúv, stöð 2, vísi, fréttablaðinu, mbl, dv. Enginn segir neitt, enginn útskýrir, enginn spyr, samfélag okkar ræðir ekki óþægileg mál. Líkleg aðild Íslands að stærsta mengunarhryðjuverki mannkynssögunnar í Eystrasalti er bara alls ekki til umræðu en stjórnvöld í Washington og Osló hafa þó alltént neitað.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila