
Bandaríska dómsmálaráðuneytið segir yfirvöld í Kaliforníu hafa brugðist skyldum sínum til að vernda kvenfanga gegn kynferðisofbeldi. Alríkisrannsókn leiddi í ljós að ásakanir um hundruð kynferðisárása hefðu verið hunsaðar með kerfisbundnum hætti og að stjórnendur 2 kvennafangelsa hefðu ekki tryggt föngum þá vernd sem lög kveða á um. Þetta kemur fram í frétt New York Times.
Rannsóknin hófst árið 2024 og náði til Central California Women’s Facility í Chowchilla og California Institution for Women í Chino. Dómsmálaráðuneytið aflaði gagna um kynferðisárásir og kynferðislega áreitni sem náðu nokkur ár aftur í tímann.
Stjórnarskrárbundin réttindi brotin
Niðurstaða rannsóknarinnar er að stjórnarskrárbundin réttindi fanga í báðum fangelsunum hafi ítrekað verið brotin. Yfirvöld hafi jafnframt ekki komið á fullnægjandi öryggisráðstöfunum samkvæmt bandarískum lögum frá 2003 sem ætlað er að koma í veg fyrir nauðganir og annað kynferðisofbeldi í fangelsum.
Harmeet K. Dhillon, aðstoðardómsmálaráðherra og yfirmaður borgararéttindadeildar dómsmálaráðuneytisins, segir afskiptaleysi gagnvart þjáningum kvenfanga vegna háttsemi fangelsisstarfsmanna vera ólöglegt.
Dómsmálaráðuneytið hefur gefið fangelsisyfirvöldum í Kaliforníu 49 daga til að grípa til úrbóta. Meðal annars þurfi að koma á gagnsærra kerfi við rannsókn ásakana um ofbeldi. Verði úrbætur ekki fullnægjandi getur ráðuneytið höfðað mál til að knýja fram breytingar.
Segja úrbætur þegar hafnar
Fangelsisyfirvöld í Kaliforníu segja að vinna við úrbætur hafi hafist áður en alríkisrannsóknin fór fram. Meðal aðgerða hafi verið að fjölga eftirlitsmyndavélum og bæta leiðir fanga til að tilkynna kynferðisofbeldi.
Yfirvöld benda jafnframt á að niðurstöður dómsmálaráðuneytisins virðist stangast á við lögbundnar úttektir frá síðasta ári. Samkvæmt þeim uppfylltu bæði fangelsin öll 45 viðmið bandarískra laga um varnir gegn kynferðisofbeldi í fangelsum.
116 milljónir dala vegna annars kvennafangelsis
Málið kemur í kjölfar umfangsmikils kynferðisofbeldismáls í öðru kvennafangelsi í Kaliforníu. Alríkiskvennafangelsinu í Dublin var lokað eftir að það varð alræmt vegna kynferðisofbeldis.
Í desember 2024 samþykkti bandaríska alríkisfangelsismálastofnunin að greiða samtals 116 milljónir dala til að ljúka málaferlum 103 kvenna sem sögðust hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi í fangelsinu.
