Segir það fullkomna þvælu að ekki sé hægt að birta skjölin úr leyniherberginu

gullithor676Guðlaugur Þór segir vel hægt að aflétta leynd af þeim gögnum sem tengjast einkavæðingu bankanna hina síðari sem geymd eru í leyniherberginu svokallaða á Alþingi. Guðlaugur sem var viðmælandi Markúsar Þórhallssonar og Jóhanns Kristjánssonar í morgunútvarpinu í morgun segir allt tal um að ekki sé hægt að birta þau vegna persónugreinanlegra upplýsinga sé fullkomin þvæla “ þetta er bara þvæla, fullkomin þvæla, það eru þarna nokkur nöfn á einstaklingum sem auðvelt er að strika út, sem engu máli skipta í þessu samhengi, það var fyrir tilfærslu milli gamla og nýja bankans að þeir lentu svona á milli og er algert aukaatriði og hefur ekkert að gera með þessa gjörninga sem þarna voru„,segir Guðlaugur.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila