Guðlaugur Þór segir vel hægt að aflétta leynd af þeim gögnum sem tengjast einkavæðingu bankanna hina síðari sem geymd eru í leyniherberginu svokallaða á Alþingi. Guðlaugur sem var viðmælandi Markúsar Þórhallssonar og Jóhanns Kristjánssonar í morgunútvarpinu í morgun segir allt tal um að ekki sé hægt að birta þau vegna persónugreinanlegra upplýsinga sé fullkomin þvæla “ þetta er bara þvæla, fullkomin þvæla, það eru þarna nokkur nöfn á einstaklingum sem auðvelt er að strika út, sem engu máli skipta í þessu samhengi, það var fyrir tilfærslu milli gamla og nýja bankans að þeir lentu svona á milli og er algert aukaatriði og hefur ekkert að gera með þessa gjörninga sem þarna voru„,segir Guðlaugur.