
Barnamenningarhátíð Reykjavíkur fer fram dagana 20.–26. apríl þar sem um 10.000 börn taka þátt í fjölbreyttri dagskrá víðs vegar um borgina. Allir viðburðir eru ókeypis. Dagskráin fer fram í skólum, frístundamiðstöðvum, menningarstofnunum og víðar. Markmiðið er að gefa börnum tækifæri til að skapa og móta menningarlíf borgarinnar.
Lag hátíðarinnar byggt á hugmyndum barna
Dúóið VÆB flytur lag hátíðarinnar „Sama hver það er“ sem byggir á svörum nemenda í 4. bekk um samkennd og samfélag. Lagið verður flutt á opnunarviðburði í Eldborgarsal Hörpu.
1300 börn syngja í Hörpu
Eitt stærsta atriði hátíðarinnar er Söngvavor þar sem 1300 leikskólabörn flytja lög eftir Dr. Gunna í Eldborgarsal. Viðburðurinn dregur að fjölmenni og er salurinn jafnan þéttsetinn.
Sýningar og skapandi verkefni
Nemendur í Norðlingaskóla sýna leirverk af íslenskum húsum í Borgarbókasafni Árbæjar. Þá er í Safnahúsinu sýning þar sem leikskólabörn vinna út frá íslenskum þjóðsögum og myndlist.
Fjölbreytt afþreying fyrir fjölskyldur
Boðið verður upp á sundlaugadiskó, sögustundir, skapandi smiðjur og fjölskylduviðburði víða um borgina. Í Elliðaárdal verður haldin hátíð á sumardaginn fyrsta með tónlist, leikjum og opnun Vatnsleikjagarðsins.
Tónlist í forgrunni
Tónlist skipar stóran sess í dagskránni með viðburðum á borð við Krakkabarokk, tónleika skólahljómsveita og Big Bang tónlistarhátíðina í Gerðubergi og Hraunbergi.
Ævintýrahöll í Gerðubergi
Hátíðinni lýkur með Ævintýrahöllinni 25.–26. apríl í Borgarbókasafninu Gerðubergi þar sem fjölbreytt dagskrá verður í boði fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
