
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að auglýstir verði styrkir að upphæð 1.300 milljóna króna til almennra verkefna sem eru til þess fallin að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og gera Ísland óháðara jarðefnaeldsneyti.
Áherslur ráðherra fyrir almenna úthlutun sjóðsins árið 2025 skiptast í tvo meginflokka. Annars vegar er um að ræða verkefni sem skila skjótum og mælanlegum árangri í útfösun kolefnis.
Skiptist sá flokkur niður á innviði fyrir stærri tæki og áfyllingarstöðvar fyrir raf- og lífeldsneyti og hins vegar orkuskipti og orkusparnað í margvíslegum rekstri, orkuskipti á hafi og hringrásarverkefni. Hinn flokkurinn snýr að nýrri tækni og nýsköpunarverkefnum á sviði loftslagsmála.
Nánari upplýsingar:
Reglugerð um Loftslags- og orkusjóð
Staða og áskoranir í orkumálum
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum
